Fara í efni

Opin ráðstefna um framtíðina á Bakka

Opin ráðstefna um framtíðina á Bakka

Eimur, Norðurþing, Landsvirkjun og Íslandsstofa efna til opinnar ráðstefnu á Fosshótel Húsavík, fimmtudaginn 20. nóvember næstkomandi, þar sem sjónum er beint að framtíð Bakka við Húsavík sem miðstöð sjálfbærrar atvinnuuppbyggingar.

Yfirskrift viðburðarins er Framtíðin á Bakka – Samvinna, sjálfbærni og sóknarfæriog er liður í að efla umræðu og samstöðu um framtíðarsýn fyrir atvinnuuppbyggingu á Norðurlandi.

Eimur er samstarfsverkefni um bætta auðlindanýtingu á Norðurlandi og SSNE er einn af bakhjörlum verkefnisins. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri SSNE er fundarstjóri á ráðstefnunni, en Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra mun setja ráðstefnuna.

Meðal fundarefna verður:

• Hvernig orka, varmi og innviðir skapa ný tækifæri á Bakka

• Hvernig hringrásarhagkerfi getur stutt við atvinnuþróun og alþjóðlega ímynd Íslands

• Hvernig samfélagið getur tekið virkan þátt í sjálfbærri uppbyggingu

Dagskrá:

Húsið opnar kl. 12:00 – Skráning og súpuhlaðborð fyrir gesti á Fosshótel Húsavík

Ráðstefna kl. 13:00 – 17:00

Fundarliður 1: Bakki í sókn – Tækifæri og uppbygging á grænum grunni

Fundarliður 2: Grunnstoðir Bakka – orka, innviðir og samkeppnishæfni

Fundarliður 3: Hvert stefnum við? – Framtíðarsýn Bakka til næstu kynslóða

 

Ráðstefnan er opin öllum en skráning er nauðsynleg - www.eimur.is/bakkiradstefna

Getum við bætt síðuna?