Fara í efni

Opið fyrir umsóknir um styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna búgreina

Opið fyrir umsóknir um styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna búgreina

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna í garðyrkju, samkvæmt VIII. kafla reglugerðar nr. 1273/2020 um stuðning við garðyrkju, þróunarverkefna í sauðfjár- og nautgriparækt, samkvæmt VIII. kafla reglugerðar um almennan stuðning í landbúnaði. 

Fjármunum til þróunarverkefna er ætlað að styðja við kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og þróun í greinunum svo sem ráðgjafar-, kynningar-, rannsókna- eða tilraunaverkefni sem og, vöruþróunar- og endurmenntunarverkefni. Fagráð hverrar búgreinar veitir umsögn um allar umsóknir sem berast í þróunarsjóð hennar.

Sérstök umsókn er fyrir hverja búgrein þ.e. garðyrkju, nautgriparækt og sauðfjárrækt og umsækjendur eru beðnir að gæta að því.

Umsóknarfrestur er til og með 3. maí 2021 og skal umsókn skila rafrænt á mínum síðum (eyðublaðavef) Stjórnarráðsins

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk skrifstofu landbúnaðarmála í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Senda má fyrirspurn á tölvupóstfang anr@anr.is

Getum við bætt síðuna?