Fara í efni

Opið fyrir umsóknir í Tækniþróunarsjóð - Vöxtur, Sprettur

Ljósmynd: Markaðsstofa Norðurlands
Ljósmynd: Markaðsstofa Norðurlands

Opið fyrir umsóknir í Tækniþróunarsjóð - Vöxtur, Sprettur

Tækniþróunarsjóður býður upp á fimm flokka fyrirtækjastyrkja; Fræ, Sprota, Vöxt, Sprett og Markaðsstyrki. Hver styrkur er sniðinn að mismunandi þróunarstigi verkefna.

Opið er fyrir umsóknir í Vöxt og Sprett og er næsti umsóknarfrestur þann 15. mars 2022, kl. 15:00. Fyrirtækjastyrkur Vöxtur er ætlaður til að styrkja verkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar. Fyrirtækjastyrkur Sprettur er öndvegisstyrkur. Styrkurinn er ætlaður til að styrkja verkefni hjá fyrirtæki með afurð/ir sem eru á eða nálægt markaði og að fyrirtækið hafi mikla möguleika á hröðum vexti á markaði innan næstu fimm ára.

Fyrir hverja?
Lítil og meðalstór fyrirtæki.

Til hvers?

  • Vöxtur er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar.
  • Sprettur er öndvegisstyrkur innan Vaxtar.

Hámarksstyrkur:
Hámarkstyrkur í Vexti getur numið allt að 50 milljónum króna á tveimur árum, þó ekki meira en 25 milljónum króna á hvoru ári.
Hámarksstyrkur í Spretti getur numið allt að 70 milljónum króna á tveimur árum, þó ekki meira en 35 milljónum króna á hvoru ári.

Mótframlag: Gerð er mismunandi krafa um mótframlag umsækjenda af heildarkostnaði við verkefnið eftir tegund verkefnis, tegund umsækjanda og stærð fyrirtækis.
Hámarks lengd verkefnis: 2 ár
Skil á umsókn: Umsóknarfrestur er til kl. 15:00 á lokadegi umsóknarfrests.

Umsókn skal skila rafrænt í umsóknarkerfi Rannís.

Sjá nánar reglur Tækniþróunarsjóðs

Vefsíða Tækniþróunarsjóðs.

Getum við bætt síðuna?