Fara í efni

Opið fyrir umsóknir í Tækniþróunarsjóð - Sproti

Víkurskarð. Ljósmynd: Markaðsstofa Norðurlands
Víkurskarð. Ljósmynd: Markaðsstofa Norðurlands

Opið fyrir umsóknir í Tækniþróunarsjóð - Sproti

Tækniþróunarsjóður býður upp á fimm flokka fyrirtækjastyrkja; Fræ, Sprota, Vöxt, Sprett og Markaðsstyrki. Hver styrkur er sniðinn að mismunandi þróunarstigi verkefna.

Opið er fyrir umsóknir í Sprota og er umsóknarfrestur næsti umsóknarfrestur 15. mars 2022, kl. 15:00.

Sproti er sniðinn að þörfum ungra nýsköpunarfyrirtækja og frumkvöðla með verkefni á byrjunarstigi. Frumherjinn er sjálfur í fyrirrúmi og hyggst eða hefur stofnað fyrirtæki um hugmynd sína. Gert er ráð fyrir að í verkefninu felist mikið nýnæmi og þróunarþáttur verkefnisins sé verulegur.

Fyrir hverja?
Ung nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðla.

Til hvers?
Sproti er ætlaður til að styðja við verkefni á byrjunarstigi.

Hámarksstyrkur: Styrkur getur numið allt að 20 milljónum króna samanlagt á tveimur árum, þó ekki meira en 10 milljónum króna á hvoru ári.
Mótframlag: Ekki er gerð krafa um mótframlag umsækjenda af heildarkostnaði við verkefnið.
Hámarks lengd verkefnis: 2 ár
Skil á umsókn: Umsóknarfrestur er til kl. 15:00 á lokadegi umsóknarfrests. Umsókn skal skila rafrænt í umsóknarkerfi Rannís. Skila skal inn að lágmarki eftirfarandi fylgigögnum með rafrænni skráningu umsóknar:

  • Verkefnislýsing

Skylduskjal með gefnu sniðmáti fyrir Verkefnalýsingu er aðgengilegt inni í umsóknarkerfinu. Til að nálgast skylduskjal þarf að stofna umsókn í umsóknarkerfinu og eru skjölin í stiku hægra megin.

Boðið er upp á hjálparskjal til að gera kostnaðaráætlun, allar tölur úr því skjali þarf að færa undir lið 4.1 og 4.2 í skráningareyðublaði. Hjálparskjalið er ekki hluti af umsókn og á ekki að senda inn með umsókn.

Þeir sem hafa ekki aðgang að Microsoft office er bent á að hægt er að opna og vinna skjölin í OneDrive .

Matsferli:

Umsóknir eru metnar af fagráði Tækniþróunarsjóðs. Fagráðið er þverfaglegt og skipað einstaklingum frá fyrirtækjum, háskólum og stofnunum. Miðað er við að niðurstaða liggi fyrir innan þriggja mánaða frá lokum umsóknarfrests.

Matsblað sem fagráð sjóðsins notar við mat á umsóknum og stjórn sjóðsins hefur til hliðsjónar við val á umsóknum sem hljóta framgang í sjóðnum.

Skýrsluskil:
Skila þarf inn framvinduskýrslu eftir 6 mánuði frá upphafi verkefnisársins þar sem gerð er grein fyrir framgangi verkefnisins. Við lok verkefnisársins skal skila inn áfangaskýrslu þar sem farið er yfir helstu atriði varðandi verkefnið. Ef verkefnisárið er lokaár verkefnisins skal skila inn lokaskýrslu. Áfangaskýrsla er umsókn um framhaldsstuðning sé upphaflega sótt um stuðning til lengri tíma en eins árs.

Sjá sniðmát fyrir skýrslur hér

Með áfanga- og lokaskýrslum skal skila inn verk- og kostnaðarbókhaldi ásamt nýjasta ársreikningi fyrirtækisins þegar það á við.

Minniháttaraðstoð (De minimis): Þessi styrkjaflokkur fellur undir reglur um minniháttar aðstoð. Nánari upplýsingar um minniháttar aðstoð má sjá í reglum Tækniþróunarsjóðs.

Sjá nánar reglur Tækniþróunarsjóðs

Vefsíða Tækniþróunarsjóðs

Getum við bætt síðuna?