Fara í efni

Opið fyrir umsóknir í Tækniþróunarsjóð - Hagnýt rannsóknarverkefni

Ljósmynd: Markaðsstofa Norðurlands.
Ljósmynd: Markaðsstofa Norðurlands.

Opið fyrir umsóknir í Tækniþróunarsjóð - Hagnýt rannsóknarverkefni

Hlutverk Tækniþróunarsjóðs er að styðja þróunarstarf og rannsóknir sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Markmiðin eiga að leiða til endurnýjunar og bættrar samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs og þau mótast í samræmi við áherslur Vísinda- og tækniráðs. 

Opið er fyrir umsóknir til hagnýtra rannsóknarverkefna. 

Fyrir hverja?
Háskóla, opinberar rannsóknastofnanir og opinber fyrirtæki.

Til hvers?
Hagnýt rannsóknarverkefni hafa það að markmiði að afla nýrrar þekkingar og kunnáttu sem nýtist til að þróa nýjar vörur, verkferla eða þjónustu eða til að koma í kring umtalsverðum endurbótum á eldri vörum, verkferlum eða þjónustu. Verkefnið þarf að vera með skýr og raunhæf markmið um hagnýtingu.

Umsóknarfrestur:
Umsóknarfrestur er einu sinni á ári. Næsti umsóknarfrestur er 28. febrúar 2022 kl. 15:00

Hámarksstyrkur: Allt að 45 milljónum króna samanlagt á þremur árum, þó ekki meira en 30 milljónum króna á tveimur árum eða 15 milljónum króna á einu ári.

Mótframlag: Lágmarks mótframlag aðalumsækjanda getur aldrei farið niður fyrir 20% af heildarkostnaði hans við verkefnið. Ef meðumsækjandi er lítið fyrirtæki þá getur mótframlag fyrirtækis ekki farið undir 20% af kostnaði við verkefnið, 25% ef fyrirtækið er meðalstórt og 35% ef fyrirtækið er stórt.

Hámarks lengd verkefnis: 3 ár

Skil á umsókn: Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 á lokadegi umsóknarfrests. Umsókn skal skila rafrænt í umsóknarkerfi Rannís. Skila skal inn að lágmarki eftirfarandi fylgigögnum með rafrænni skráningu umsóknar:

  • Verkefnislýsing [HR]

Þeir sem hafa ekki aðgang að Microsoft office er bent á að hægt er að opna og vinna skjölin í OneDrive .

Matsferli: Umsóknir eru metnar af fagráði Tækniþróunarsjóðs. Fagráðið er þverfaglegt og skipað einstaklingum frá fyrirtækjum, háskólum og stofnunum. Miðað er við að niðurstaða liggi fyrir innan þriggja mánaða frá lokum umsóknarfrests.

Matsþættir sem fagráð sjóðsins mun nota við mat á umsóknum og stjórn sjóðsins hefur til hliðsjónar við val á umsóknum sem hljóta framgang í sjóðnum.

Sjá nánar reglur Tækniþróunarsjóðs fyrir Hagnýt rannsóknarverkefni 2021

Getum við bætt síðuna?