Fara í efni

Opið fyrir umsóknir í Matvælasjóð

Opið fyrir umsóknir í Matvælasjóð

Matvælasjóður auglýsir eftir umsóknum. Þetta er í þriðja sinn sem sjóðurinn auglýsir úthlutun og er heildarúthlutunarfé sjóðsins 593 milljónir króna.
Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl.

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla um land allt. Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna. 

,,Á tímum þar sem fæðuöryggi er okkur hugleikið er mikilvægt að styðja af fremsta megni við nýsköpun og þróun í innlendri matvælaframleiðslu. Okkar takmark er að íslensk matvælaframleiðsla sé samnefnari fyrir sjálfbæra nýtingu, frjóa nýsköpun og fullunnin matvæli í hæsta gæðaflokki", segir Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra. 

Sjóðurinn veitir styrki í fjórum flokkum:

  • Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi, úr hugmynd yfir í verkefni.
  • Kelda styrkir rannsóknaverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu.
  • Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi, eru ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð.
  • Fjársjóður styrkir sókn á markaði, hjálpar fyrirtækjum að koma sínum verðmætum á framfæri.

Hér getur þú skoðað hvaða verkefni hlutu styrk árið 2021.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér flokkana og handbókina vel áður en farið er í að vinna umsókn. Handbók umsækjenda hefur verið endurskoðuð og allar umsóknir fara nú í gegnum Afurð sem er stafrænt stjórnsýslukerfi matvælaráðuneytisins.

Hægt er að senda inn fyrirspurnir á netfangið matvaelasjodur@mar.is. Fyrirspurnin skal merkt í efnislínu með þeim flokki sem hún varðar (Bára, Kelda, Afurð eða Fjársjóður). Ef fyrirspurnin er almenns eðlis skal merkja hana "Almennt" í efnislínu.

Umsækjendur geta sótt um hér.
Heimasíða Matvælasjóðs 

 Bókaðu viðtal hjá atvinnuráðgjöfum SSNE og fáðu aðstoð við umsóknarskrif.  

Getum við bætt síðuna?