Fara í efni

Opið fyrir umsóknir í Byggðarannsóknasjóð

Opið fyrir umsóknir í Byggðarannsóknasjóð

Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Byggðarannsóknasjóði til rannsókna á sviði byggðamála. Umsóknir þurfa að berast eigi síðar en miðvikudaginn 28. febrúar n.k. Til úthlutunar eru 10 m.kr.

Í umsóknum skal meðal annars koma framgreinargóð lýsing á rannsókninni, markmiðum hennar, ávinningi, nýnæmi og hvernig hún styður við tilgang sjóðsins. Við mat á umsóknum er meðal annars litið til hvernig verkefnið styður við markmið sjóðsins, vísindalegs-og hagnýts gildis þess og hæfni umsækjenda. Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna-, þróunar-og háskólastofnanir eða aðrir lögaðilar.

Frekari upplýsingar um Byggðarannsóknasjóð er að finna á vef Byggðastofnunar. Byggðastofnun hefur veitt styrki úr Byggðarannsóknasjóði allt frá árinu 2015. Alls hafa 32 verkefni hlotið styrk á árunum 2015-2022 að heildarfjárhæð 78,9 m.kr. Á árinu 2022 fengu fjögur verkefni styrk:

  • Háskólinn á Hólum: Ráðandi tungumál í íslenskri ferðaþjónustu.Skoðað verður hver staða íslensku er í íslenskri ferðaþjónustu. Einnig á að skoða hvernig íslenskan er notuð í markaðssetningu í ferðaþjónustu og vekja athygli á þeim menningararfi sem felst í tungumálinu.
  • Háskólinn á Akureyri: Working class women. Rannsaka á andlega og líkamlega heilsu kvenna með lágar tekjur, bæði í dreifbýli og þéttbýli. Finna á út hvernig velferðarstefna stjórnvalda virkar fyrir þennan hóp eða virkar ekki, en rannsóknir á þessum þjóðfélagslega hópi skortir.
  • Háskóli Íslands:The Role of Cultural Institutions. Skoða á hlutverk menningarstofnana og samfélagsmiðstöðva á landsbyggðinni gagnvart innflytjendum og hvort þær eru í stakk búnar til að leggja sitt af mörkum til aðlögunar þeirra. Starfsemin í dreifbýlinu verður sérstaklega til skoðunar. Verkefnið er unnið í samstarfi við nokkur bókasöfn á landinu, en staðirnir voru valdir út frá hlutfalli íbúa af erlendum uppruna.
  • Háskóli Íslands: Sjálfboðaliðar í brothættum byggðum.Varpa á ljósi á hverjar helstu ástæður eru fyrir ráðningu erlendra sjálfboðaliða í dreifbýli og hver áhrif þess eru á atvinnumál og afkomu nærsamfélagsins.

Nánari upplýsingar veitir Hanna Dóra Björnsdóttir
Netfang: hannadora@byggdastofnun.is
Sími 455 5454 og 898 6698.

Getum við bætt síðuna?