Pistill framkvæmdastjóra: Öflugar byggðir gera Ísland sterkara
Pistill framkvæmdastjóra: Öflugar byggðir gera Ísland sterkara
Október hefur verið annasamur og fjölbreyttur mánuður hjá SSNE. Eins og oft áður hefur stór hluti starfsins hefur snúist um hagsmunagæslu og samtöl um ákvarðanir stjórnvalda sem hafa áhrif á þjónustu, atvinnulíf og búsetuskilyrði á Norðurlandi eystra. Mánuðurinn hefur einnig minnt okkur rækilega á þann kraft sem býr í samfélögunum okkar; í frumkvöðlum, fyrirtækjum, menningarlífi og fólki sem vill láta gott af sér leiða í sinni heimabyggð.
Þegar við tölum um byggðamál er auðvelt að falla í þá gryfju að umræðan verði að einhvers konar togstreitu milli landshluta. Að landsbyggðin sé að kalla eftir einhverju frá höfuðborgarsvæðinu eða að aukin fjárfesting á einum stað hljóti að vera á kostnað annars.
Í mínum huga væri til mikils að vinna að færast frá þeirri hugsun. Byggðamál snúast nefnilega ekki um „okkur“ og „ykkur“. Þau snúast um okkur öll.
Spurningin sem við eigum alltaf að vera með í huga er hvernig við byggjum upp sterkara Ísland. Land þar sem við nýtum mannauð, auðlindir, hugvit og tækifæri um allt land og þar sem fólk hefur raunverulegt val um hvar það býr, starfar og byggir upp framtíð sína.
Að horfa á ákvarðanir með byggðalinsu
Það er einmitt þess vegna sem við hjá SSNE höfum lagt áherslu á mikilvægi svokallaðrar byggðalinsu í umsögnum okkar í tengslum við ákvarðanatöku ríkisins síðustu vikur og mánuði.
Jafnræði felst nefnilega ekki í því að gera nákvæmlega það sama alls staðar. Sömu ákvarðanir geta haft afar ólík áhrif eftir því hvar fólk býr og starfar. Breytingar á opinberri þjónustu geta haft önnur áhrif þar sem langt er að sækja þjónustu en þar sem hún er í næsta nágrenni. Því getur gjaldtaka sem t.a.m. tengist akstri haft mismunandi áhrif eftir vegalengdum og möguleikum fólks og fyrirtækja til að nýta aðra ferðamáta. Orkuskipti ganga heldur ekki með sama hætti alls staðar ef innviðir og raunhæfir kostir eru ekki fyrir hendi.
Þetta er hugsunin á bak við byggðalinsuna: Að áður en ákvarðanir eru teknar sé spurt hvaða áhrif þær hafi á ólík samfélög og hvort þær styðji raunverulega við þau markmið sem við höfum sett okkur um byggðaþróun. Slíkt myndi einnig gefa tækifæri til mótvægisaðgerða.
Í umsögn stjórnar SSNE um fjárlagafrumvarp ársins 2027 var einmitt lögð áhersla á þetta sjónarhorn. Þar var kallað eftir því að byggðalinsu yrði beitt við lokaafgreiðslu fjárlaga og bent á mikilvægi þess að fjármögnun lykilinnviða og þjónustu væri fullnægjandi, varanleg og tímasett.
Öflug nærþjónusta skiptir máli
Sama grunnhugsun birtist í fleiri málum sem við höfum unnið að í október.
Breytingar á opinberri stjórnsýslu kalla til dæmis á að við hugum sérstaklega að nærþjónustu, staðbundinni þekkingu og því hvernig ákvarðanataka færist til. Fram undan eru breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits og á fundi sínum í október skipaði stjórn SSNE starfshóp til að kortleggja þau verkefni sem verða áfram á ábyrgð sveitarfélaga, meta þjónustu- og sérfræðiþörf og skoða mögulegar samstarfsleiðir.
Þá skilaði stjórn SSNE í Samráðsgátt stjórnvalda umsögn um fyrirhugaðar breytingar á lögregluembættum landsins þar sem áhersla var lögð á mikilvægi öflugrar nærþjónustu og staðbundins ákvörðunarvalds.
Þetta eru ólík mál, en undirliggjandi spurningin er sú sama: Hvernig tryggjum við góða þjónustu og sterkt samfélag fyrir fólk, óháð búsetu?
Byggðaþróun snýst líka um tækifæri
Umræðan um byggðamál má þó ekki eingöngu snúast um að verja þá þjónustu sem fyrir er.
Öflug byggðastefna snýst líka, og ekki síður, um að skapa skilyrði fyrir ný tækifæri.
Þar höfum við séð mikinn kraft í október í tengslum við verkefni SSNE.
Umsóknarfresti í Uppbyggingarsjóð Sóknaráætlunar Norðurlands eystra lauk í mánuðinum og bárust 156 umsóknir þar sem sótt var um um 287 milljónir króna, en áætlað er að rúmlega 80 milljón króna verði til úthlutunar að þessu sinni.
Á bak við þessar tölur er fólk með hugmyndir.
Fólk sem vill skapa eitthvað nýtt, efla menningu, þróa atvinnulíf eða gera samfélagið sitt betra. Það er kannski ein besta birtingarmynd byggðaþróunar. Hún á sér ekki eingöngu stað í stefnuskjölum, fjárlögum eða á fundum. Hún er ekki síst þegar fólk sér tækifæri þar sem það býr og fær möguleika til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd.
Sama kraft sjáum við meðal frumkvöðla um land allt. Í október fór fram vinnustofa Startup Landsins, þar sem verkefni víðs vegar að af landinu komu saman með áherslu á tengslamyndun, skapandi hugsun og áframhaldandi þróun. Fjórtán verkefni voru valin til þátttöku í hraðlinum. Startup Landið er líka frábært dæmi um þar sem landshlutarnir taka höndum saman og styðja við nýsköpun allt í kringum landið.
Verkefni eins og Virkjum íbúana minna okkur síðan á að samfélagsuppbygging snýst ekki aðeins um störf og fjárfestingar heldur líka um þátttöku fólks og lifandi samfélög. Verkefnið snýr að því að efla samfélagshús og staðbundna samkomustaði sem vettvang samfélagsins og verður spennandi að sjá hvaða verkefni verða fyrir valinu.
Ekki jaðarinn heldur hluti af heildinni
Markmiðið getur því ekki verið að hvert byggðarlag verði eins eða hafi sömu styrkleika og annað. Þvert á móti felast tækifærin í fjölbreytileikanum. Verkefnið hlýtur að vera að skapa aðstæður þar sem ólík samfélög geta nýtt sína styrkleika og fólk hefur raunverulegt tækifæri til að byggja þar upp líf sitt og framtíð.
Kannski þurfum við því stundum að snúa umræðunni um byggðamál aðeins við.
Öflugar byggðir eru ekki eitthvað sem þarf að halda uppi. Þær eru virkir þátttakendur í verðmætasköpun landsins. Þar verður til þekking, menning, nýsköpun, matvæli, orka, þjónusta, fyrirtæki og samfélög sem eru hluti af þeirri heild sem Ísland er.
Það er líka kjarninn í okkar starfi hjá SSNE. Við eigum að vera sterk sameiginleg rödd sveitarfélaganna og Norðurlands eystra þegar kemur að ákvörðunum sem hafa áhrif á landshlutann. En við eigum jafnframt að styðja við fólkið, fyrirtækin og samfélögin sem vilja skapa hér ný tækifæri.
Þetta tvennt helst í hendur.
Öflugir innviðir og góð nærþjónusta skapa jarðveg fyrir frumkvæði, atvinnulíf og samfélagsþróun. Og skapandi, fjölbreytt og öflug samfélög gera okkur betur í stakk búin til að takast á við breytingar og nýta þau tækifæri sem framtíðin færir okkur.
Öflugt Ísland verður ekki byggt upp á einum stað. Það verður til í sterkum samfélögum um allt land.
Þess vegna eru byggðamál ekki spurning um okkur og ykkur.
Þau eru spurning um okkur öll.