Fara í efni

Nýr verkefnastjóri SSNE á Tröllaskaga

Nýr verkefnastjóri SSNE á Tröllaskaga

Anna Lind Björnsdóttir hóf störf í síðustu viku og er fyrsti starfsmaður SSNE á Tröllaskaga en hún er með viðveru á bæði Dalvík og Ólafsfirði.  Hún er ættuð frá Siglufirði en ólst upp í Reykjavík. Síðustu 10 ár hefur hún verið búsett í Svíþjóð og Noregi og flutti nýverið aftur heim.

Anna Lind er menntaður ferðamálafræðingur og hefur B.A gráðu frá Háskólanum á Hólum og M.Sc. gráðu í náttúrutengdri ferðaþjónustu frá NMBU, Háskólinn í Ås í Noregi.

Hún hefur umfangsmikla reynslu af verkefnastjórnun, stærri og minni verkefna, og ráðgjöf til fyrirtækja og einstaklinga. Síðustu ár hefur Anna Lind starfað sem viðskiptafulltrúi hjá sendiráði Íslands í Osló, þar sem meginhlutverk hennar var m.a að greiða leið og gæta hagsmuna íslenskra fyrirtækja og einstaklinga Í Noregi. Hún hefur einnig starfað í ferðaþjónustu við að skipuleggja ferðir og markaðssetja Ísland og Grænland sem áfangastað og hefur starfað hjá Ferðafélagi Noregs. Þá hefur Anna Lind verið stundakennari við viðskiptadeild Háskólans í Suð-austur Noregi (USN).

Anna Lind er spennt fyrir komandi verkefnum hjá SSNE enda er svæðið stútfullt af framsæknu fólki með drifkraft og tækifærin á hverju strái.  Hægt er að ná í hana í annalind@ssne.is.  

Getum við bætt síðuna?