Fara í efni

Ný tækifæri - Opnunarhátíð Evrópusamstarfs

Ný tækifæri - Opnunarhátíð Evrópusamstarfs

Ný tækifæri í Evrópusamstarfi, sem gilda árin 2021-2027 verða kynnt í beinni útsendingu frá Borgarleikhúsinu 15. apríl kl. 14:00-16:00 þegar nýrri kynslóð samstarfsáætlana ESB verður hleypt af stokkunum.

Sem fyrr verður einungis mögulegt að taka þátt rafrænt en  hér er hægt að horfa á streymi.

Það sem farið verður yfir á hátíðinni eru helstu nýjungar og styrkjamöguleika Horizon Europe rannsókna- og nýsköpunaráætlunarinnar, Erasmus+ á sviði menntunar, æskulýðsmála og íþrótta, European Solidarity Corps fyrir sjálfboðaliða- og samfélagsstarf ungs fólks og Creative Europe á sviði skapandi greina. 

Hér að neðan er hægt að kynna sér styrkjamöguleika:

Horizon Europe




Erasmus+

It-all-starts

European Solidarity Corps


Creative Europe.

Á hátíðinni verður einnig litið um öxl og árangri síðustu ára fagnað í óformlegu spjalli við styrkþega sem segja sínar sögur. Loks verður sagt frá vinnustofum og nánari kynningum um hverja áætlun sem skipulagðar verða í framhaldinu.

Sveitarfélög eru hvött til að taka þátt og kynna sér samstarfsáætlanir ESB og þau tækifæri sem í þeim felast.

Frétt frá Rannís

Getum við bætt síðuna?