Fara í efni

Norðurland eystra í tölum

Norðurland eystra í tölum

Púlsinn – Norðurland í tölum kemur nú út í fyrsta skipti og markar upphaf að reglulegri útgáfu þar sem birtar verða bæði stuttar og ítarlegar greiningar á stöðu mála í landshlutanum. Markmiðið er að varpa skýrara ljósi á þróun samfélags, atvinnulífs og byggðar með aðgengilegum og gagnadrifnum hætti.

Í þetta sinn beinist sjónum að aflaheimildum á Norðurlandi eystra, en sjávarútvegur hefur áratugum saman verið burðarstoð í mörgum samfélögum landshlutans og þróun hans skiptir máli fyrir bæði atvinnu, búsetu og framtíðarsýn svæðisins. Ný úttekt sýnir að staðan er mjög misjöfn eftir sveitarfélögum – sum hafa styrkt stöðu sína umtalsvert á síðustu árum á meðan önnur hafa tapað verulegu magni heimilda.

Hér má nálgast 1. tbl. af Púlsinum 

Getum við bætt síðuna?