Norðanstormur – áhersla á styrkleika landsbyggðarinnar
Norðanstormur – áhersla á styrkleika landsbyggðarinnar
Norðanstormur, öflugur vettvangur sem tengir saman frumkvöðla, fjárfesta og sérfræðinga, var haldinn á Akureyri í síðustu viku og heppnaðist afar vel. Á ráðstefnunni var fjallað um helstu tækifæri í nýsköpun á landsbyggðinni og hvernig fyrirtæki utan höfuðborgarsvæðisins standa sterkt í síbreytilegu atvinnulífi.
Mæting var mjög góð og skapaðist lífleg og innihaldsrík umræða um vaxtarmöguleika, fjármögnun og mikilvægi þess að efla nýsköpun í landshlutunum. Fyrirlesarar komu víða að og deildu reynslu sinni af uppbyggingu, þróun og fjármögnun verkefna sem sprottið hafa upp á Norðurlandi.
Staðsetning utan höfuðborgarsvæðisins – ekki ókostur heldur styrkleiki
Eitt af meginþemum ráðstefnunnar var að staðsetning fyrirtækja á landsbyggðinni er ekki hindrun – heldur geti hún verið verulegur styrkleiki.
Fyrirlesarar bentu á fjölmarga þætti sem gera landshlutasprota að eftirsóknarverðum samstarfsaðilum og fjárfestingarkostum, þar á meðal:
- Öflugt og fjölbreytt nærumhverfi,
- Samhent og traust samfélag,
- Sterk tengslanet,
- Aukin áhersla á lífsgæði og jafnvægi í daglegu lífi.
Þessar aðstæður skapa frjósaman jarðveg fyrir frumkvöðlastarf, mótun nýrra hugmynda og hraða þróun verkefna sem tengjast atvinnuuppbyggingu á svæðinu.
Hluti af Nýsköpunarferðalagi Norðurlands
Norðanstormur er samstarfsverkefni SSNE og SSNV og er hluti af Nýsköpunarferðalagi Norðurlands, sem hefur það að markmiði að efla nýsköpunarumhverfi landshlutans og skapa tengingar milli frumkvöðla, fjárfesta og hagaðila.
Á viðburðinum deildu bæði sjóðsstjórar og fjárfestar innsýn í fjármögnunarleiðir, en frumkvöðlar stigu einnig á svið og sögðu frá áskorunum og tækifærum sem þeir hafa mætt á sinni vegferð.
Viðburðurinn endaði á léttu spjalli og tengslamyndun þar sem gestir fengu tækifæri til að hittast og ræða áfram tækifærin sem fram undan eru