Fara í efni

Norðanstormur á fimmtudaginn!

Norðanstormur á fimmtudaginn!

Norðanstormur er vettvangur þar sem hugmyndir, fjármagn og framtíðarsýn mætast. Á ráðstefnunni deila sjóðsstjórar og fjárfestar innsýn í helstu fjármögnunarleiðir fyrir frumkvöðla og vaxandi fyrirtæki. Eftir það stíga frumkvöðlar sjálfir á svið og segja frá sinni vegferð – áskorunum, tækifærum og þeim skrefum sem leiddu þá að fjármögnun.

Ráðstefnan fer fram í Hofi á Akureyri þann 26. febrúar kl. 9:30–12:00.

Norðanstormur – Dagskrá
Opnun:
Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV

Fjármögnun
Erindi:

  • Edda Lára Lúðvígsdóttir, fjárfestingastjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu
  • Ragnheiður H. Magnúsdóttir, stofnandi Nordic Ignite
  • Svava Björk Ólafsdóttir, stofnandi IceBAN

Pallborðsumræður:
Stýrt af Albertínu Fr. Elíasdóttur, framkvæmdastjóra SSNE

Árangurssögur
Erindi:

  • Ingólfur Bragi Gunnarsson, framkvæmdastjóri Mýsköpunar
  • Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri og stofnandi GeoSilica
  • Amber Monroe, stofnandi Ísponica
  • Kolbeinn Óttarsson Proppé, eigandi og framkvæmdastjóri Grænafls

Pallborðsumræður:
Stýrt af Sesselju Barðdal Reynisdóttur, framkvæmdastýru Driftar EA

Smáréttir og spjall

Skráning fer fram hér.

Getum við bætt síðuna?