Fara í efni

Norðanátt fær 20 m.kr. fjárveitingu frá umhverfis- orku- og loftlagsráðuneytinu

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ásamt fulltrúum frá Samtökum sveitar…
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ásamt fulltrúum frá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Eimi.

Norðanátt fær 20 m.kr. fjárveitingu frá umhverfis- orku- og loftlagsráðuneytinu

Samstarfsyfirlýsing var undirrituð af SSNE, SSNV, Eimi og umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra nýverið um Norðanátt, verkefni sem styður við nýsköpun með áherslu á loftlagsmál og hringrásarhagkerfið.  Lengi hefur SSNE þrýst á ráðherra umhverfismála að leggja sóknaráætlun landshlutans til fjármagn í takt við auknar áherslur á umhverfismál og er þetta fyrsta skrefið í þá átt þótt styrkurinn sé eingöngu gerður til eins árs. 

Samstarfsverkefnið Norðanátt er nýsköpunarhreyfing sem miðar að því að skapa kraftmikið umhverfi á Norðurlandi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki. Norðanátt vinnur þvert á helstu stofnanir samfélagsins og sækir styrk sinn til sveitarfélaga, atvinnulífsins, frumkvöðla og öflugs stuðningsumhverfis frumkvöðla á höfuðborgarsvæðinu.

Ráðuneytið mun styrkja verkefnið um 20 milljónir króna.

„Loftslagsmálin eru ein stærsta áskorun sem Ísland og heimurinn allur stendur frammi fyrir. Hringrásarhagkerfið er mikilvægur liður í lausn á þeim vanda og skiptir nýsköpun, þátttaka samfélags og atvinnulífs miklu máli. Þar má enginn verða útundan og mikilvægt að allir landshlutar taki þátt. Þessvegna er ánægjulegt að vera með í þessu góða samstarfi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra.

Getum við bætt síðuna?