Fara í efni

Námskeið fyrir græna leiðtoga sveitarfélaga SSNE

Námskeið fyrir græna leiðtoga sveitarfélaga SSNE

Sveitarfélögum býðst að senda græna leiðtoga sína á námskeið til dr. Snjólaugar Ólafsdóttur þann 22. september næstkomandi. Snjólaug Ólafsdóttir er sviðstjóri sjálfbærni hjá EY og hefur komið víða við á sviði sjálfbærni. M.a. hefur hún unnið mikið með Festu - miðstöð um sjálfbærni og aðstoðað við gerð og innleiðingu sjálfbærni- og loftslagsstefnu hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum.

Sveitarfélög SSNE geta sent fulltrúa á námskeiðið sér að kostnaðarlausu, en námið er liður í að byggja upp þekkingu á umhverfis- og loftslagsmálum innan hvers sveitarfélags. Námskeiðið er hluti af fræðsluáætlun um umhverfis- og loftslagsmál (LOFTUM) sem er eitt áhersluverkefna landshlutans árið 2023 og styrkt af Sóknaráætlun.

Tengiliðir Grænna skrefa SSNE eru boðnir sérlega velkomnir á námskeiðið, en annað starfsfólk að sjálfsögðu velkomið. Skráningarform og frekari upplýsingar má finna hér og velkomið að hafa samband við verkefnastjóra umhverfismála SSNE ef einhverjar spurningar vakna; kristinhelga@ssne.is eða smari@ssne.is. 

Getum við bætt síðuna?