„Mikilvægt er að jafna búsetuskilyrði og auka aðgengi að þjónustu,“ segir innviðaráðherra
„Mikilvægt er að jafna búsetuskilyrði og auka aðgengi að þjónustu,“ segir innviðaráðherra
Innviðaráðuneytið hefur gefið út nýjar leiðbeiningar um mat á áhrifum lagafrumvarpa á byggðarlög og búsetufrelsi. Markmiðið er að tryggja að áhrif nýrrar löggjafar á ólík landsvæði séu metin með markvissari og samræmdari hætti áður en ákvarðanir eru teknar.
Leiðbeiningarnar, sem nefndar eru byggðalinsa, eiga að nýtast ráðuneytum og stofnunum við undirbúning lagafrumvarpa, stefnumótun og áætlanagerð. Með þeim er landfræðilegri vídd bætt við áhrifamat stjórnvalda og sérstaklega horft til þess hvort áhrif ákvarðana geti orðið ólík eftir byggðarlögum.
Hægt er að skoða leiðarvísinn hér: Leiðarvísir fyrir mat á áhrifum lagasetningar á byggðarlög
Þannig á meðal annars að skoða strax á fyrstu stigum hvaða landsvæði séu líkleg til að verða fyrir áhrifum af fyrirhugaðri lagasetningu og hvort áhrifin kunni að verða meiri í fámennum eða viðkvæmum byggðum. Ef áhrif dreifast ójafnt á byggðir landsins gera leiðbeiningarnar ráð fyrir ítarlegri greiningu og sérstöku samráði við þau svæði sem verða fyrir mestum áhrifum.
Greiningin tekur meðal annars til áhrifa á tekjur og atvinnu, húsnæði og búsetu, aðgengi að þjónustu, samgöngur, innviði og öryggi, auk samfélagslegra þátta. Einnig á að skoða ferðatíma og kostnað vegna grunnþjónustu, stafrænt aðgengi og hvort ákvarðanir hafi áhrif á atvinnumöguleika eða fjölbreytni atvinnulífs.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur áður lagt áherslu á mikilvægi þess að opinber stefnumótun stuðli að jafnari búsetuskilyrðum. Í umræðu um fjármálaáætlun á Alþingi sagði hann: „Ég legg ríka áherslu á að byggðasjónarmið séu hluti af allri opinberri stefnumótun. Ég geri mér grein fyrir því að lög og stjórnvaldsfyrirmæli geta haft veruleg áhrif á búsetugæði fólks, og starfsaðstæður fyrirtækja í byggðarlögum um land allt. Af þessum sökum ákvað ég að fela Byggðastofnun að móta nýjar leiðbeiningar fyrir stjórnvöld. Þetta var gert í samráði við fjármála- og dómsmálaráðuneytið, og varðar það hvernig meta skuli áhrif lagafrumvarpa á byggðarlög og frelsi til búsetu. Byggðastofnun hefur nú þegar skilað lokadrögum að þessum leiðbeiningum, og munu þær verða birtar á vef Stjórnarráðsins á næstu vikum.“
Leiðbeiningarnar voru unnar af Byggðastofnun að beiðni innviðaráðherra í samstarfi við innviðaráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið og dómsmálaráðuneytið. Þær eru hluti af framkvæmd stefnu stjórnvalda í málefnum sveitarfélaga og markmiðum um búsetufrelsi og eins sambærileg búsetuskilyrði og þjónustu og kostur er á um allt land.
Nánar er fjallað um málið á vef Innviðaráðuneytisins:
Nýjar leiðbeiningar um mat á áhrifum lagafrumvarpa á byggðarlög og búsetufrelsi