Fara í efni

Mikill áhugi á Norðansprotanum – 40 umsóknir bárust frá öllu Norðurlandi

Mikill áhugi á Norðansprotanum – 40 umsóknir bárust frá öllu Norðurlandi

Alls bárust 40 umsóknir í nýsköpunarkeppnina Norðansprotann víðsvegar að af Norðurlandi. Norðansprotinn er nú haldinn í þriðja sinn, en vonandi verður keppnin árlegur viðburður héðan í frá. Nú eru keppendur að gera einblöðung sem matsnefnd keppninnar fer yfir og mun hún svo velja 5–8 verkefni, sem fá tækifæri til að kynna hugmyndir sínar á lokaviðburði Norðansprotans.

Lokaviðburðurinn fer fram miðvikudaginn 22. apríl kl. 17:00 í Messanum í Drift á Akureyri og er viðburðurinn öllum opinn. Þar munu þau verkefni sem komast í úrslit stíga á svið, kynna hugmyndir sínar fyrir dómnefnd og gestum og keppa um titilinn Norðansprotinn.

Norðansprotinn er nýsköpunarkeppni sem miðar að því að draga fram efnilegar hugmyndir á frumstigi og styðja við framþróun nýsköpunar á Norðurlandi. Keppnin er vettvangur fyrir frumkvöðla til að prófa hugmyndir sínar, fá endurgjöf og tengjast öflugu nýsköpunarumhverfi landshlutans.

„Það er alveg ótrúlegt að sjá allan þann kraft, hugmyndaauðgi og metnað sem birtist í umsóknum til Norðansprotans. Áhugi af þessu tagi sýnir glögglega hversu öflug nýsköpunarsena er til staðar á Norðurlandi,“ segir Díana Jóhannsdóttir, verkefnastjóri hjá SSNE.

Norðansprotinn er samstarfsverkefni SSNE, SSNV, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Hólum, Drift EA og Hraðsins með veglegum stuðningi frá Landvættum fjárfestingasjóði.

Getum við bætt síðuna?