Fara í efni

Mentorar og verðlaun Hacking Norðurlands

Mentorar og verðlaun Hacking Norðurlands

Kynnt hefur verið alla þá mentora sem verða með á lausnamótinu Hacking Norðurland dagana 15.- 18. apríl næstkomandi þar sem unnið verður með sjálfbæra nýtingu auðlinda svæðisins með tilliti til matar, vatns og orku. 

Markmið lausnamótsins er að efla frumkvöðlastarf og sköpunarkraft á svæðinu og þannig stuðla að nýjum verkefnum og viðskiptatækifærum.

Lausnamótið fer að stærstum hluta til fram í gegnum Hugmyndaþorp, sem er stafræn leið til samsköpunar, þróuð er af sprotafyrirtækinu Austan mána í samstarfi við Hacking Hekla. Þátttaka er ekki háð staðsetningu og er öllum velkomið að taka þátt.

Verðlaun Hacking Norðurlands 
Fyrstu verðlaun - 500.000 kr.

Fjöldi aukaverðlauna - þ.á.m. frá 1238 : The Battle Of Iceland, Grána, Hótel Laugarbakki, Hótel Hvammstangi, Spákonuhof Skagaströnd,Grásteinn guesthouse, North Sailing, Veitingastofan Sólvík, Sel-Hótel Mývatn, Harbour Restaurant, Selasetur Íslands...og fleiri á leiðinni

 Hér er hægt að skrá sig

Mentorar Hacking Norðurlands 2021 er kröftugt og reynslumikið fólk út atvinnulífinu:

                    

                             

Hacking Norðurland er samstarfsverkefni Hacking Hekla, Eims, Nordic Food in Tourism, SSNE, SSNV og Nýsköpun í norðri.
Íslandsbanki styrkir verkefnið.

 

Getum við bætt síðuna?