Fara í efni

Matvælasjóður úthlutar styrkjum

Matvælasjóður úthlutar styrkjum

Á dögunum úthlutaði Matvælasjóður styrkjum í fjórum flokkum, Bára, Kelda, Afurð og Fjársjóður og var í heildina úthlutað um 585 m.kr. og hlutu að þessu sinni 53 verkefni brautargengi. Af veittum styrkjum voru um 19% á Norðurlandi eystra, en um 15% umsókna voru þaðan.

Verkefnin sem hlutu styrk eru mjög fjölbreytt allt frá nýtingu hreisturs og beinum í leðurgerð til húðvara úr íslenskri nautatólg. Alls voru 16 verkefni á Norðurlandi eystra og sex verkefni sem ná yfir landið allt.

SSNE óskar öllum styrkhöfum til hamingju með styrkina, heildarlista má finna hér

Getum við bætt síðuna?