Fara í efni

Málþing Veltek í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri, 24. júní

Málþing Veltek í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri, 24. júní

Málþing Veltek í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri, 24. júní
Samþætting heilbrigðis- og velferðarþjónustu, sjálfbær þjónusta, sjálfstæðir notendur.

Heilbrigðis- og velferðartækniklasi Norðurlands (Veltek) mun halda málþing um nýjar nálganir í þjónustu við íbúa. Flutt verða m.a. erindi um stafræn umskipti innan heilbrigðis- og velferðarþjónustu í dreifðum byggðum, samvinnu á norðurslóðum og rannsóknir á þjónustulausnum kynntar. Í tengslum við málþingið munu fyrirtæki kynna þjónustulausnir sínar.

Verkefnið hefur hlotið stuðning úr sóknaráætlun Norðurlands eystra.

Aðgangur að þinginu er öllum opinn en óskað er eftir skráningu hér

DAGSKRÁ

9:00 – 9:30 Húsið opnar, boðið upp léttar veitingar á morgunverðarhlaðborði.

9:30 – 9:45 Opnun og kynning Veltek heilbrigðis- og velferðartækniklasa Norðurlands.

                         Perla Björk Egilsdóttir, verkefnastjóri Veltek.

                          Rafrænt ávarp heilbrigðisráðherra.

9:45 – 10:10 Stafræn umskipti og samþætting á heilbrigðis- og félagsþjónustu á strjálbýlum svæðum.

                           Kynning á norrænum verkefnum.

10:10 – 10:25 Norðurslóðasamfélög, áskoranir og tækifæri til samvinnu.

                           Embla Eir Oddsdóttir, forstöðumaður Norðurslóðanets.

10:30 – 11:05 Hlé með kaffiveitingum. Fyrirtæki sýna heilbrigðislausnir sínar.

11:05 – 11:30 Tækifæri til samvinnu og nýsköpunar.

                             Garðar Már Birgisson, viðskiptaþróun hjá Þulu.

11:30 – 11:55 Velferðartækni og sjálfstæð búseta.

                        Dr. Björg S. Anna Þórðardóttir, iðjuþjálfi, gestalektor við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri og rannsóknarstaða við Osló Metropolitan Háskólann.

12:00 – 13:10 Hádegishlé. Boðið verður upp á léttan hádegisverð og fyrirtæki sýna heilbrigðislausnir sínar.

13:10 – 13:30 Dagþjálfun á Heilsuvernd Hjúkrunarheimili.

                             Þóra Sif Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsuvernd Hjúkrunarheimili.

13:30 – 13:50 Nýjungar í velferðartækni hjá heimahjúkrun HSN á Akureyri.

                          Deborah Júlía Robinson, ráðgjöf iðjuþjálfa við heimahjúkrun HSN og

                            Eva Björg Guðmundsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur við heimahjúkrun HSN.

13:50 – 14:15 Heilbrigðisfræðsla og virkir notendur heilbrigðisþjónustu.

                           Dr. Brynja Ingadóttir, sérfræðingur í hjúkrun og forstöðumaður Miðstöðvar um sjúklingafræðslu á Landspítala.

14:15 – 14:40 Nýsköpunar- og þróunarverkefni í öldrunarþjónustu Fjallabyggðar.

                         Helga G. Erlingsdóttir, verkefnastjóri Fjallabyggð.

14:40 Samantekt.

                    Sigurður E. Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga Sjúkrahúsinu á Akureyri og stjórnarmaður Veltek.

14:50 Undirritun samstarfsyfirlýsingar á milli Fjallabyggðar, HSN og Veltek.

15:00 Boðið verður upp á léttar veitingar í þinglok og fyrirtæki sýna heilbrigðislausnir sínar.

                                                                                                                                                                                                               

Getum við bætt síðuna?