Lokaviðburður Startup Landið
Lokaviðburður Startup Landið
Það styttist í lokaviðburð Startup Landið, sem haldinn verður á Akureyri fimmtudaginn 30. október kl. 13–15.
Okkur er sönn ánægja að bjóða þér að fagna þessum spennandi áfanga með okkur!
Tólf teymi voru valin til þátttöku í Startup Landið og hafa þau unnið ötullega að nýsköpunarverkefnum sínum undanfarnar vikur.
Á lokaviðburðinum stíga teymin á svið og kynna fyrirtækin sín með stuttri og hnitmiðaðri kynningu (pitch).
________________________________________
Mundialis – Malað frostþurrkað grænmeti, beint í hollustudrykkinn. (Vesturland)
Festivus – Hornfirskt gæðasúkkulaði og ævintýralegur áfangastaður. (Suðurland)
Snældur – Íslensk hönnunar- og gjafavara fyrir börn á aldrinum 0–4 ára úr íslenskum við. (Norðurland eystra)
Ahsig ehf. – Dagsferðir fyrir ferðaþjónustu í Skagafirði. (Norðurland vestra)
Fast and Affordable – Ný byggingartækni til að lækka byggingarkostnað og stytta byggingartíma á steinsteyptum húsum. (Suðurnes)
Cannarctica – Orkusparandi heildarlausn fyrir gróðurhús í köldu loftslagi. (Vestfirðir)
Lífrænt vottaðar íslenskar lækningajurtir – Framleiðsla og sala lífrænna lækningajurta. (Vesturland)
Hunda Veisla – Lífrænt heilfóður fyrir hraustari hunda, unnið úr úrgangi sláturhúsa. (Suðurland)
Böggvisbrauð – Lífrænt súrdeigsbrauð – næringarríkt og umhverfisvænt. (Norðurland eystra)
Brekka Ferðaþjónusta – Ómönnuð verslun á Þingeyri ásamt veitingasölu. (Vestfirðir)
Sólbrekka Mjóafirði – Ævintýraleg vetrarferð með áherslu á friðsæld og náttúrufegurð. (Austurland)
Litli Gúri ehf. – Upplifðu náttúruna og undur hafsins – RIB Safari á Skagaströnd. (Norðurland vestra)
________________________________________
Léttar veitingar verða í boði fyrir gesti.
Við lofum góðri stemningu, innblæstri og skemmtilegum kynningum – og hlökkum til að sjá þig á lokaviðburði Startup Landsins á Akureyri! https://luma.com/od32ee6r
Startup Landið - Lokaviðburður · Luma
12 teymi sem tóku þátt í viðskiptahraðlinum Startup Landið kynna hugmyndir sínar í Hofi á Akureyri.