Fara í efni

Líflegar umræður á fyrirtækjaþingi Akureyrar

Líflegar umræður á fyrirtækjaþingi Akureyrar

Fyrirtækjaþing Akureyrar fór fram í Hofi í dag, en þingið er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar og SSNE. Á þinginu fór Ásthildur yfir mikilvægi atvinnulífsins og öflugra fyrirtækja fyrir Akureyri. Albertína Fr. Elíasdóttir framkvæmdastjóri fjallaði um starfsemi SSNE og fór yfir þá miklu vinnu sem hefur átt sér stað í tengslum við Borgarstefnuna. Jafnframt var farið yfir niðurstöður Fyrirtækjaþings 2025 og þau verkefni sem spruttu upp úr þeirri vinnu kynnt stuttlega.

Þátttakendur tóku virkan þátt í umræðum sem einkenndust af opnu og jákvæðu samtali um málefni atvinnulífsins og framtíðarsýn fyrirtækja á Akureyri. Á þinginu skapaðist góður vettvangur fyrir fyrirtæki til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, deila hugmyndum og ræða sameiginleg tækifæri og áskoranir. Viðburðurinn gaf jafnframt tækifæri til tengslamyndunar og eflingar samstarfs milli fyrirtækja og annarra hagaðila.

Fyrirtækjaþingið sýndi skýrt þann áhuga sem er til staðar á áframhaldandi samtali og samvinnu um þróun atvinnulífs á Akureyri og mikilvægi þess að rödd fyrirtækja heyrist við mótun framtíðarstefnu.

Getum við bætt síðuna?