Landsbyggðastefna RÚV
Landsbyggðastefna RÚV
Fulltrúar sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og SSNE áttu afar ánægjulegan fund með Stefáni Eiríkssyni útvarpsstjóra á dögunum um tilgang, möguleika og uppbyggingu landsbyggðastefnu RÚV. Var fundurinn haldinn að ósk RÚV, sem kallaði sérstaklega eftir því að ræða þessi mál; fá hugmyndir, tillögur og sjónarmið inn í vinnu sína.
Um 15 ár eru liðin frá því að svæðisbundnar útsendingar RÚV voru lagðar niður en samkvæmt upplýsingum á vef RÚV eru starfsstöðvar RÚV þrjár utan höfuðborgarsvæðisins; Akureyri, Borgarnesi og Egilsstöðum. Fyrir tæpu ári síðan tók SSNE þátt í undirbúningi og framsögu málþingsins ,,Næsti kafli dagskrárgerðar á Íslandi" sem fór fram í eina sjónvarpsmyndveri utan höfuðborgarsvæðisins, en það er staðsett á Húsavík. Á fundinum var mikilvægi starfstöðvar RÚV á Norðurlandi undirstrikað sem og þess að nýta þá innviði sem eru til staðar í mannauði, tækjabúnaði og aðstöðu á Norðurlandi.
Vegna tilstuðlan fyrrverandi formanns SSNE og núverandi stjórnarmeðlims, Hildu Jönu Gísladóttur, hefur RÚV síðustu mánuði unnið að gerð landsbyggðarstefnu RÚV og hefur RÚV nú meðal annars þróað nýtt mælaborð til að fylgjast með hver flóra viðmælenda er bæði í útvarpi og sjónvarpi. Samkvæmt útvarpsstjóra er nú komið á býsna gott kynjajafnvægi hvað varðar viðmælendur en nú er ætlunin að nýta mælaborðið til að kanna og fylgjast með búsetu viðmælenda í fréttum og dagskrárgerð.
Á fundinum var RÚV jafnframt hvatt til að skoða möguleika þess að nýta aðgerðarstyrki B.7 úr Byggðaáætlun í vegferð sinni að gæta að sýnileika íbúa Íslands, óháð búsetu. Það er byggðamál að skrá sögu allra á landinu, en ekki síður að efla búsetufrelsi með fjölgun atvinnutækifæra og auknum fjölbreytileika starfa í byggðum landsins.
Fyrir áhugasöm er gott að benda á að hér má finna allar stefnur RÚV og er gaman að geta þess að fyrr á þessu ári óskaði RÚV eftir samstarfi og rýni frá menningarfulltrúum landshlutasamtaka vegna Tónlistarstefnu RÚV.
RÚV er sameign íslensku þjóðarinnar og miðlar fréttum, fróðleik, menningu og listum í sjónvarpi, útvarpi og vefnum. Það er verðmætt þegar vilji til samstarfs er fyrir hendi hjá öllum aðilum við borðið. Fréttaskot, ábendingar um áhugaverð umfjöllunarefni eða viðmælendur má senda inn hér og hvetjum við ykkur íbúa landshlutans að veita jákvætt aðhald og senda inn tilkynningar. Kynningarstarf fer sjaldnast fram í hljóði.