Fara í efni

Landbótasjóður Landgræðslunnar auglýsir eftir umsóknum um styrki

Laugar. Ljósmynd: Markaðsstofa Norðurlands
Laugar. Ljósmynd: Markaðsstofa Norðurlands

Landbótasjóður Landgræðslunnar auglýsir eftir umsóknum um styrki

Árlega úthlutar Landbótarsjóður Landgræðslunnar styrkjum til að styðja félagasamtök, bændur, sveitarfélög og aðra umráðahafa lands við verndun og endurheimt gróðurs og jarðvegs. Áratugurinn 2021 til 2030 er tileinkaður endurheimt vistkerfa og er fólk eindregið hvatt til þátttöku.

Landgræðslan veitir ráðgjöf við framkvæmd þeirra verkefna sem sjóðurinn styrkir og hefur jafnframt eftirlit með framvindu þeirra og metur árangur.

Opið verður fyrir umsóknir á tímabilinu frá 13. janúar til og með 24. janúar 2022. Umsóknarform og reglur sjóðsins eru á heimasíðu Landgræðslunnar www.land.is. Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar og ráðgjöf um sjóðinn hjá héraðsfulltrúum stofnunarinnar um land allt eða senda tölvupóst á lbs@land.is

Ákvörðun um styrkveitingar byggir á markmiðum laga nr. 155/2018 um landgræðslu.

Umsóknareyðublöð - Landgræðsla

Getum við bætt síðuna?