Fara í efni

Kynningarfundur fyrir framboð til sveitarstjórna á Norðurlandi eystra

Kynningarfundur fyrir framboð til sveitarstjórna á Norðurlandi eystra

SSNE, í samstarfi við Markaðsstofu Norðurlands og Eim, boðar til rafræns fundar fimmtudaginn 30. apríl kl. 12:00, þar sem starfsemi SSNE, Markaðsstofu Norðurlands og Eims verður kynnt sérstaklega fyrir fulltrúum framboða til sveitarstjórna á Norðurlandi eystra. Fundurinn fer fram á Teams.

Markmið fundarins er að veita skýra yfirsýn yfir hlutverk, verkefni og áherslur þessara aðila og hvernig þeir styðja við atvinnuþróun, byggðamál og samstarf sveitarfélaga á svæðinu. Fundurinn er jafnframt opinn öllum áhugasömum sem vilja kynna sér starfsemi þessara aðila og þau tækifæri sem í boði eru.

Oddvitar framboða eru sérstaklega hvattir til að mæta, en fundurinn hentar einnig vel öðrum frambjóðendum og íbúum sem vilja dýpka skilning sinn á starfsemi SSNE, Markaðsstofu Norðurlands og Eims.

Hlekkur á fundinn. 

Getum við bætt síðuna?