Fara í efni

Karen hrönn Eyvindóttir og Kristín Gunnarsdóttir eru teknar til starfa á Raufarhöfn og á Bakkafirði

Karen hrönn Eyvindóttir og Kristín Gunnarsdóttir eru teknar til starfa á Raufarhöfn og á Bakkafirði

Þjóðskjalasafn Íslands auglýsti í samvinnu við SSNE tvö tímabundin störf til allt að 18 mánaða við skráningu sóknarmannatala. Störfin felast í vinnu við innslátt sóknarmannatala í rafrænan gagnagrunn. Í Þjóðskjalasafni eru varðveitt ríflega 1500 sóknarmannatöl frá um miðri 18. öld til miðrar 20. aldar og hefur verið unnið að innslætti þeirra í leitarbæran gagnagrunn á undanförnum árum.

Störfin byggja á styrksamningi Þjóðskjalasafns Íslands við Byggðastofnun f.h. innviðaráðherra, með vísan í aðgerð B.8 Fjarvinnslustöðvar í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024, og eru þau samstarfsverkefni SSNE, Þjóðskjalasafns, Norðurþings og Langanesbyggðar.

SSNE fagnar því mjög störfin séu komin á staðina enda samfélagsleg áhrif af einu starfi mikil í smærri byggðakjörnum. Sú stefna sem fram kemur í áætluninni um uppbyggingu fjarvinnslustöðva á landsbyggðinni og störf án staðsetningar er mikilvægur liður í því að fjölga atvinnutækifærum í hinum dreifðari byggðum og mun SSNE áfram vera með allar klær úti við að ná nýjum störfum inná dreifðari byggðir í landshlutanum. SSNE óskar Karen og Kristínu til lukku með störfin.

Getum við bætt síðuna?