Fara í efni

Kallað eftir erindum á Byggðaráðstefnuna sem fer fram í nóvember

Að ráðstefnunni standa auk Byggðastofnunar, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Samband íslen…
Að ráðstefnunni standa auk Byggðastofnunar, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Samband íslenskra sveitarfélaga og Þingeyjarsveit.

Kallað eftir erindum á Byggðaráðstefnuna sem fer fram í nóvember

Kallað er eftir erindum á Byggðaráðstefnuna sem haldin verður þriðjudaginn 4. nóvember 2025 í Skjólbrekku, Mývatnssveit - Takið daginn frá ☑️

Umfjöllunarefni ráðstefnunnar er: Félagslegur fjölbreytileiki samfélaga, jafnvægi, áskoranir eða vannýtt sóknarfæri?

Tilgangur ráðstefnunnar er að vekja athygli á byggðamálum og efla umræðu. Tengja saman fræðilega og hagnýta þekkingu á byggðaþróun með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri þróun byggðar um allt land.

Ráðstefnan er vettvangur fólks úr fræða- og háskólasamfélaginu, stjórnsýslunni, sveitarstjórnum, atvinnulífi og annarra sem áhuga hafa á byggða- og samfélagsmálum.

Að þessu sinni verður leitast við að ná fram ólíkum sjónarmiðum þeirra sem vinna að rannsóknum og stefnumótun á vettvangi byggðamála með áherslu á félagslegan fjölbreytileika samfélaga.

Kallað er eftir erindum frá fræða- og háskólasamfélaginu, stefnumótendum og þeim sem vinna á vettvangi um stöðu og þróun byggða. Lögð er áhersla á að fyrirlesarar hafi rúman efnisramma og geti fjallað hvort heldur sem er um einstakan þátt eða fleiri eftir eðli máls. En ætlast er til að efnið tengist meginþræðinum þ.e. byggðamálum og félagslegum fjölbreytileika.

Tillaga að fyrirlestri með stuttri innihaldslýsingu, 250-300 orða útdrátt, sendist til Byggðastofnunar á netfangið hannadora@byggdastofnun.is eigi síðar en 26. ágúst 2025.

 Að ráðstefnunni standa auk Byggðastofnunar, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Samband íslenskra sveitarfélaga og Þingeyjarsveit.

Getum við bætt síðuna?