Fara í efni

Innblástur og framfarir: Málþing um rannsóknir á menningu og skapandi greinum

Hægt er að skrá sig á staðfund eða streymi
Hægt er að skrá sig á staðfund eða streymi

Innblástur og framfarir: Málþing um rannsóknir á menningu og skapandi greinum

Rannsóknasetur skapandi greina býður til málþings um rannsóknir á atvinnulífi menningar og skapandi greina. Rannsakendur flytja áhugaverð erindi um rannsóknir á þessu sviði. Einnig verður starfsemi Rannsóknaseturs skapandi greina kynnt og tendrararnir Bragi Valdimar Skúlason og Sigurlína Ingvarsdóttir segja frá eigin reynslu af atvinnulífi menningar og skapandi greina.

Þá flytur Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, opnunarávarp og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra lokar málþinginu.

Málþingið fer fram þann 4. mars nk. í Mengi, Óðinsgötu 2, Reykjavík kl. 13:00-16:00. Einnig verður unnt að fylgjast með framsögum í beinu streymi. Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig og jafnframt að tilgreina hvort þeir ætli að mæta á staðinn eða á streymi. Nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu erlarun@bifrost.is.

 Smelltu hér til að skrá þig á staðfund eða í streymi.

Uppfært 4. mars, samkvæmt frétt á vef Háskólans á Bifröst.
Rannsóknasetur skapandi greina var stofnað síðastliðið sumar og efnir nú til síns fyrsta málþings. Á málþinginu verður fjallað um fyrirliggjandi rannsóknir á menningu og skapandi greinum og þörf á frekari rannsóknum og greiningum. Rannsóknir á atvinnulífi menningar og skapandi greina skortir tilfinnanlega í dag en þær eru forsenda fyrir uppbyggingu atvinnuvegarins og skilningi stjórnvalda og hagsmunaaðila á einkennum, tækifærum og áskorunum.

Markmið Rannsóknaseturs skapandi greina er meðal annars að efla og bæta rannsóknir og vera leiðandi í mótun nýrra rannsóknaverkefna, í samvinnu háskóla innanlands sem utan. Með málþinginu gefst tækifæri til að vekja athygli á þeim rannsakendum sem láta sig svið menningar og skapandi greina varða og efla samtal þeirra á milli. 

Þau sem kynna rannsóknir sínar eru: Kristín Valsdóttir Listaháskóla Íslands, Kjartan Sigurðsson Háskólanum á Akureyri, Katrín Anna Lund, Háskóla Íslands, Sigrún Lilja Einarsdóttir Háskólanum á Bifröst, Áskell Heiðar Ásgeirsson Háskólanum á Hólum, Þórey Þórisdóttir Háskóla Íslands, Rán Tryggvadóttir og Ágúst Ólafur Ágústsson sérfræðingar. Þá flytur Erla Rún Guðmundsdóttir, sem veitir RSG forstöðu, erindi um lykiltölur menningar og skapandi greina og starfsemi rannsóknasetursins. Anna Hildur Hildibrandsdóttir formaður stjórnar Rannsóknaseturs skapandi greina verður málþingsstjóri.  

Getum við bætt síðuna?