Hvernig skrifa ég umsókn í LIFE?
Hvernig skrifa ég umsókn í LIFE?
Landstengiliðir LIFE áætlunarinnar hjá Rannís leggja land undir fót og heimsækja Akureyri í október. Tilgangur ferðarinnar er að bjóða upp á námskeið fyrir umsækjendur sem hyggjast sækja um í LIFE árið 2027, sem og að bjóða upp á fundi í persónu með mögulegum umsækjendum.
Á námskeiðinu verður farið yfir umsóknarferlið og ýmis atriði sem ber að hafa í huga við umsóknarskrif og gerð fjárhagsáætlana.
LIFE er umhverfis- og loftslagsáætlun ESB og markmið hennar eru að:
- vernda náttúru Evrópu með því að hægja á og snúa við hnignun líffræðilegs fjölbreytileika. LIFE áætlunin fjármagnar verkefni sem takast á við umhverfis- og loftslagsbreytingar,
- flýta fyrir hreinum orkuskiptum með aukinni útbreiðslu orkunýtni og endurnýjanlegri orku,
- draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, auka viðnámsþol vegna loftslagsbreytinga og auka meðvitund um að draga úr loftslagsbreytingum,
- leggja til hringrásarhagkerfisins með nýrri tækni og lausnum,
- vernda, endurheimta og bæta umhverfið og auka í kjölfarið lífsgæði fólks.
LIFE verkefni ættu að þróa, sannreyna og skala upp nýstárlegar lausnir á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Þeim er ætlað að stuðla að því að bestu þekkingu sé beitt sem víðast til að ná fram breyttri hegðun sem og stuðla að innleiðingu og fylgni við áætlanir, stefnur og löggjöf Evrópusambandsins. Verkefnin ættu auk þess að vera hvati að því að vel heppnuðum lausnum sé beitt víðar og í stærri mæli en áður.
Nánari upplýsingar um LIFE
Námskeiðið og ráðgjöf eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Akureyri
Borgir, Háskólinn á Akureyri
Námskeið: 13. október kl. 14:00-17:00 - Skráning
Fundir með umsækjendum: 14. október kl. 09:00-12:00 - Hafið samband við life@rannis.is