Fara í efni

Hjólað í vinnuna hefst 3. maí

Hjólað í vinnuna hefst 3. maí

Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarverkefninu „Hjólað í vinnuna“.

Megin markmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Þátttakendur eru hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur til og frá vinnu í þrjár vikur í maí ár hvert.

Hjólað í vinnuna fer fram dagana 3. – 23. maí 2023.

SSNE mun að sjálfsögðu taka þátt í verkefninu og hvetur sveitarfélögin, stofnanir og fyrirtæki á svæðinu til að taka þátt. En þess má jafnframt geta að verkefnið veitir stig inn á Græn Skref. 

Allar upplýsingar og skráning fer fram á www.hjoladivinnuna.is

Getum við bætt síðuna?