Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hafin
Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hafin
Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hófst miðvikudaginn 18. júní og stendur til og með 22. júní.
Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Hátíðin byggir á því góða starfi sem unnið hefur verið í Hrísey en fyrsta Hinsegin hátíðin í Hrísey var haldin árið 2023. Nú sameinast öll sveitarfélögin á Norðurlandi eystra um Hinsegin daga, ásamt samtökunum Hinsegin Norðurland og Hinsegin hátíðinni í Hrísey. Samstarfsaðilarnir vinna saman að undirbúningi hátíðarinnar, sem er hugsuð þannig að viðburðir fari fram á öllu svæðinu.
Dagskráin er afar fjölbreytt og er til að mynda boðið upp á ókeypis bíósýningar, tónleika, hinsegin bókmenntir, fánasmiðju, Barsvar, fyrirlestra, grill, myndlistaropnanir, Vandræðaskáld, messu og alls kyns fleiri uppákomur. Dagskrána er að finna á heimasíðunni www.hinseginhatid.is.
Fólk er hvatt til að taka þátt í hátíðinni og samstöðu, hvort heldur sem það er með því að mæta á viðburði, skreyta, flagga eða með því að vekja athygli á hátíðinni á einhvern hátt.
Það eru viðburðir í öllum sveitarfélögunum, t.d. fánasmiðja í menningarhúsinu Bergi á Dalvík, The Rocky Horror Picture Show í búningagleði á Þórshöfn, tröppur verða málaðar við sundlaugina á Þelamörk, sýningarnar Út úr skuggunum og Bakslag verða opnaðar á Safnahúsinu á Húsavík, hægt verður að hlýða á ósagðar sögur hinsegin fólks í Þingeyjarsýslu, njóta Kjallarakabaretts í Hrísey, hlusta á áhrifamikla frásögn Veigu Grétarsdóttur um það hvernig hún hefur synt á móti straumnum, hlusta á Pride tónlist á Gamla bænum í Mývatnssveit o.s.frv. Nú er um að gera að skoða dagskrána, ferðast um landshlutann og njóta viðburða.
Verkefnið Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra er eitt af þeim fjölbreyttu og spennandi verkefna sem hlutu styrk úr Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra fyrir árið 2025. Uppbyggingarsjóður er eitt af tækjum landshlutans í vegferðinni að ná markmiðum Sóknaráætlunar. Markmið Sóknaráætlunar er að greina og stuðla að jákvæðri og sjálfbærri samfélags- og byggðaþróun og auka samráð, skilgreina tækifæri og setja fram raunhæfar aðgerðir til að efla byggð, atvinnu og lífsgæði. Hún er unnin í samstarfi heimamanna, atvinnulífs, sveitarfélaga og annarra hagaðila - hér treysta stjórnvöld heimafólki til að leggja línurnar. Sóknaráætlanir skapa sameiginlega sýn fyrir hvern landshluta, sem einfaldar forgangsröðun verkefna. Sjá nánar hér um gildi Sóknaráætlunar.
Nánari upplýsingar um hátíðina og viðburði má finna á fjölbreyttum miðlum:
- Hlusta: Mannlegi þátturinn - Spilari RÚV
- Heildaryfirlit: www.hinseginhatid.is.
- Hvað er að gerast akkúrat núna: Instagram @hinseginhatid
- Facebook: www.facebook/hinseginhatid
- Nánari upplýsingar veitir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir, verkefnastjóri hátíðarinnar, í síma 697 8217, eða í netfanginu elisabetogn@akureyri.is