Fara í efni

Heimsókn til Grímseyjar

Heimsókn til Grímseyjar

Anna Lind og Díana verkefnastjórar SSNE heimsóttu Grímsey á dögunum. Sólin skein og veðrið lék við eyjaskeggja og ferðamenn. Anna Lind og Díana fengu vinnuaðstöðu í Múla þar sem kvenfélagið Baugur hefur sett upp glæsilega vinnuaðstöðu. Boðið var þar upp á viðtalstíma og áttu verkefnastjórar gott spjall um verkefni og tækifæri í eynni.

Vinnuaðstaðan var tekin í notkun í mars 2022, hún rúmar eins og stendur vinnuaðstöðu fyrir fjóra aðila. Aðstaðan er öllum í boði sem vilja dvelja í eyjunni. Hægt er að hafa samband við kvenfélagið til að bóka aðstöðuna fyrir vægt gjald. Áhugasamir geta hringt í síma 8655110.

Anna Lind og Díana þakka fyrir góðar móttökur og hlakka til að koma aftur sem fyrst. 

Getum við bætt síðuna?