Fara í efni

Haustþing SSNE mótmælir hækkun virðisaukaskatts á baðlón

Helena Eydís Ingólfsdóttir, varaformaður SSNE og forseti sveitarstjórnar Norðurþings
Helena Eydís Ingólfsdóttir, varaformaður SSNE og forseti sveitarstjórnar Norðurþings

Haustþing SSNE mótmælir hækkun virðisaukaskatts á baðlón

Meðal ályktana haustþings SSNE sem fór fram á Dalvík þann 9. september var ályktun um fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á baðlón og sambærilega baðstarfsemi. Ályktunin var lögð fram að tillögu þingfulltrúa Norðurþings og samþykkt á þinginu eftir umræður um áhrif breytinganna á ferðaþjónustu, atvinnuuppbyggingu og fjárfestingar á Norðurlandi eystra.

Helena Eydís Ingólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Norðurþings og varaformaður stjórnar SSNE, lagði ályktunina fram fyrir hönd þingfulltrúa sveitarfélagsins. Þar er lýst yfir þungum áhyggjum af fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts og bent á að hún geti haft veruleg áhrif á samkeppnishæfni, fjárfestingar og atvinnusköpun í ferðaþjónustu, ekki síst á landsbyggðinni.

Á starfssvæði SSNE eru þrír stórir baðstaðir sem gegna mikilvægu hlutverki í heilsársferðaþjónustu; Jarðböðin (Earth Lagoon) við Mývatn, Sjóböðin (GeoSea) á Húsavík og Skógarböðin (Forest Lagoon) við Akureyri. Fyrirtækin hafa skapað fjölda starfa, aukið verðmætasköpun og styrkt rekstrargrundvöll fjölmargra annarra fyrirtækja á starfssvæði SSNE. Í ályktuninni segir meðal annars:

„Ekki síst hafa þau stuðlað að fjölgun og eflingu heilsársstarfa, sem eru ein mikilvægasta forsenda sjálfbærrar byggðaþróunar og búsetu á landsbyggðinni.“

„Við megum ekki við því að tapa fleiri störfum“
Helena Eydís segir málið sérstaklega mikilvægt fyrir Norðurþing í ljósi þeirra áfalla sem samfélagið hefur orðið fyrir í atvinnumálum að undanförnu.

„Eins og flestum er kunnugt þá hefur samfélagið í Norðurþingi orðið fyrir áfalli í atvinnumálum á síðastliðinu ári. Við það töpuðust rúmlega 100 störf ásamt því að við töpuðum rúmlega 100 íbúum frá 1. desember 2025 til 1. september 2026. Við megum ekki við því að tapa fleiri störfum eða að íbúum fækki enn frekar,“ segir Helena í samtali við vef SSNE.

Hún segir miklu skipta að standa vörð um heilsársstarfsemi og búsetugæði á svæðinu.

„Okkur er mikið í mun að viðhalda þeim búsetugæðum sem íbúar búa við í Norðurþingi og að gestir geti notið þess sem sveitarfélagið hefur upp á að bjóða allan ársins hring en ekki bara hluta úr ári. Þess vegna lögðum við í Norðurþingi ályktunina fram og óskuðum eftir stuðningi fulltrúa nágrannasveitarfélaganna og erum þakklát fyrir að hafa fengið hann.“

Helena bendir jafnframt á að baðstaðir á Norðurlandi eystra séu á ólíkum stað í sinni uppbyggingu. Sjóböðin á Húsavík séu í reglubundnum rekstri, umfangsmiklum breytingum og stækkun á Jarðböðunum við Mývatn sé nýlokið og Skógarböðin séu í uppbyggingarferli. Þá séu áform um frekari uppbyggingu baða á svæðinu.

„Skattahækkunin sem nú er boðuð með þessum skamma fyrirvara getur haft ólík áhrif á fyrirtækin eftir þeim aðstæðum sem uppi eru á hverjum stað, hvort sem það eru bein áhrif á rekstur eða fjárfestingar,“ segir Helena.

Í ályktun haustþingsins er skorað á ríkisstjórn og Alþingi að endurskoða fyrirhugaðar breytingar og tryggja að skattastefna ríkisins styðji áfram við uppbyggingu verðmætra starfa og sjálfbærrar ferðaþjónustu um land allt. Jafnframt er lögð áhersla á að við skattabreytingar verði tekið mið af byggðasjónarmiðum og raunverulegum áhrifum þeirra á atvinnu og fjárfestingar utan höfuðborgarsvæðisins.

Allar ályktanir Haustþings SSNE 2026 má lesa í heild hér:
Ályktanir Haustþings [á .pdf formi]

Getum við bætt síðuna?