Haustþing SSNE: Mikil tækifæri í því að efla Flugþróunarsjóð
Haustþing SSNE: Mikil tækifæri í því að efla Flugþróunarsjóð
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) 2025 hvetja stjórnvöld til að nýta betur þau miklu tækifæri sem felast í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll í og hvetur til þess að flugþróunarsjóður verði efldur verulega. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var einróma á haustþingi SSNE.
„Millilandaflugið hefur þegar skilað sér í aukinni uppbyggingu í ferðaþjónustu á Norðurlandi og leikur mikilvægt hlutverk því að skapa góð skilyrði fyrir atvinnuppbyggingu og bæta búsetugæði. Tækifærin í því að efla millilandaflugið og festa í sessi með frekari fjárfestingu í flugþróunarsjóði eru gríðarleg, með auknum fyrirsjáanleika sem gefur forsendur fyrir frekari uppbyggingu. Þannig eykst samkeppnishæfi alls svæðisins sem flugvöllurinn nær til og um leið alls landsins. Á Akureyrarflugvelli mætast tækifæri ferðaþjónustu, útflutnings og atvinnuuppbyggingar. Það er kominn tími til að nýta þau tækifæri til fulls — í þágu Norðurlands eystra og landsins alls“, segir Lára Halldóra Eiríksdóttir, formaður SSNE.
Beint flug til og frá Akureyri hefur þegar sýnt fram á mikla möguleika til að styrkja ferðaþjónustu og atvinnulíf á landsbyggðinni, segir í ályktuninni. Samkvæmt nýlegri skýrslu Rannsóknamiðstöðvar ferðamála stuðlar millilandaflug til Akureyrar að aukinni dreifingu ferðamanna og eflingu ferðaþjónustu utan suðvesturhorns landsins.
Í ályktuninni segir auk þess: „Akureyrarflugvöllur er mikilvæg innviða- og atvinnuuppbygging fyrir allt Norðurland eystra og raunar fyrir landið í heild. „Með eflingu flugs um Akureyri skapast ný tækifæri fyrir ferðaþjónustu, útflutning, erlendar fjárfestingar og tengsl við alþjóðamarkaði sem nýtast landinu öllu.“
Haustþingið leggur áherslu á að flugþróunarsjóður verði efldur, bæði með auknu fjármagni og endurskoðun á reglum hans, svo hægt sé að tryggja áframhaldandi uppbyggingu og rekstrargrundvöll beins millilandaflugs til Akureyrar.
Þá leggur þingið til að komið verði á fót sérstakri stjórn fyrir Akureyrarflugvöll sem móti stefnu hans til framtíðar. Hlutverk stjórnarinnar væri að byggja upp völlinn sem öfluga alþjóðlega gátt inn í landið, þróa nauðsynlega innviði, tryggja samkeppnishæfni hans og leiða markaðssetningu í samstarfi við Markaðsstofu Norðurlands og Íslandsstofu.