Grænafl og Nanna Lín valin til þátttöku í TONIK 2026 í Færeyjum
Grænafl og Nanna Lín valin til þátttöku í TONIK 2026 í Færeyjum
SSNE hefur lokið vali á þeim aðilum sem fá styrk til þátttöku í nýsköpunarkeppninni TONIK 2026, sem fer fram í maí í Færeyjum. Niðurstaðan er sú að Grænafl og Nanna Lín voru valin úr hópi umsækjenda og munu fá stuðning til að taka þátt í keppninni.
TONIK er alþjóðlegur nýsköpunarviðburður sem leggur áherslu á lausnir tengdar sjálfbærni, orku, matvælum og nýtingu auðlinda á Norður-Atlantshafssvæðinu. Tonik skapar vettvang fyrir frumkvöðla til að þróa hugmyndir sínar áfram, byggja upp tengslanet og kynna lausnir sínar fyrir alþjóðlegum samstarfsaðilum, fjárfestum og sérfræðingum.
Grænafl vinnur að lausnum sem miða að orkuskiptum í smábátaútgerð með því að breyta núverandi bátum og setja í þá 100% rafmagnsvélar eða blendingsvélar. Verkefnið leggur áherslu á að draga úr losun, bæta vinnuumhverfi sjómanna og lækka rekstrarkostnað, með skýra sýn á sjálfbæra nýtingu hafsins og hringrásarhugsun, með því að nýta núverandi skipakost í stað þess að smíða nýjan.
Nanna Lín þróar nýstárlegan og sjálfbæran leðurtextíl úr fiskroði sem nýtist í fatnað, fylgihluti og fleira. Með verkefninu er vannýtt aukaafurð umbreytt í verðmæta vöru og stuðlar þannig að hringrásarhagkerfinu, með minni sóun í bæði matvæla- og textíliðnaði.
Með þátttöku í TONIK 2026 í maí fá bæði verkefni tækifæri til að styrkja stöðu sína á alþjóðamarkaði, þróa viðskiptamódel sín áfram og skapa ný tengsl.
SSNE óskar Grænafl og Nönnu Lín innilega til hamingju með valið og hlakkar til að fylgjast með framvindu verkefnanna.