Fara í efni

Fyrsta stjórn Fiskeldissjóðs skipuð - 113 milljónir króna til úthlutunar

Fyrsta stjórn Fiskeldissjóðs skipuð - 113 milljónir króna til úthlutunar

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað fyrstu stjórn Fiskeldissjóðs sem stofnaður var árið 2020. Hlutverk sjóðsins er að styrkja uppbyggingu innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað og þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum.

Tekjur sjóðsins eru hlutfall af því gjaldi sem rekstrarleyfishafar fiskeldisstöðva í sjó greiða í ríkissjóð samkvæmt lögum sem tóku gildi um áramótin 2019/2020 en þau lög skylda fyrirtæki sem stunda fiskeldi í sjó að greiða fast gjald af slátruðum fiski til ríkissjóðs.  Fiskistofa leggur gjaldið á tvisvar á ári og hafa fyrirtækin 14 daga til að greiða gjaldið sem nemur ákveðnu hlutfalli af markaðsverði á atlantshafslaxi.  Sveitarfélög sækja um styrki úr sjóðnum og 3ja manna stjórn tekur svo ákvörðun um hverjir fá úthlutað fé úr sjóðnum.

Stjórnina skipa: 
Aðalmenn:

  • Haraldur Líndal Haraldsson, án tilnefningar
  • Álfheiður Ingadóttir, tilnefnd af forsætisráðherra
  • Kjartan Dige Baldursson, tilnefndur af fjármála- og efnahagsráðherra

Varamenn:

  • Ása Þórhildur Þórðardóttir, án tilnefningar
  • Orri Páll Jóhannsson, tilnefndur af forsætisráðherra
  • Guðrún Birna Finnsdóttir, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðherra 

Stjórn sjóðsins mun fljótlega auglýsa eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki úr sjóðnum til verkefna sem eru til þess fallin að byggja upp innviði og þjónustu á svæðum þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað.

Frétt RUV.is um nýstofnaðan Fiskeldissjóð frá janúar 2020

Getum við bætt síðuna?