Fundur stjórnar SSNE á Laugum
Fundur stjórnar SSNE á Laugum
Norðurland eystra er býsna víðfemur landshluti og nær allt frá Siglufirði í vestri til Bakkafjarðar í austri og fundar því stjórn alla jafnan rafrænt, en stjórn SSNE er skipuð 11 fulltrúum. Þó er reynt að halda staðfundi tvisvar á ári og er þá tækifærið nýtt og ólík sveitarfélög heimsótt hvert sinn.
Í tilefni 81. fundar stjórnar tóku fulltrúar Þingeyjarsveitar vel á móti stjórn SSNE en fundurinn var haldinn í hinni glæsulegu Þingey, stjórnsýsluhúsi Þingeyjarsveitar. Stjórn SSNE þakkar sérstaklega fyrir góðar móttökur í sveitarfélaginu.