Fundað með starfshópi Stjórnarráðsins um stöðu atvinnumála í Norðurþingi
Fundað með starfshópi Stjórnarráðsins um stöðu atvinnumála í Norðurþingi
Í byrjun vikunnar funduðu fulltrúar SSNE og Eims með starfshópi sem skipaður var af forsætisráðherra vegna stöðunnar sem upp er komin í Norðurþingi vegna tímabundinnar rekstrarstöðvunar kísilvers PCC á Bakka. Starfshópurinn er skipaður fulltrúum fimm ráðuneyta, en formaður hans er fulltrúi forsætisráðuneytisins, Helgi Valberg Jensson. Auk þess að hitta fulltrúa SSNE og Eims á skrifstofu samtakanna á Akureyri fundaði hópurinn með fulltrúum PCC Bakka, Norðurþings, Framsýnar stéttarfélags og Þingiðnar, félags iðnaðarmanna í Þingeyjarsýslum á meðan vettvangsferð hópsins stóð.
Starfshópurinn vinnur nú að kortlagningu á stöðu atvinnumála á Norðurþingi og mun einnig vinna tillögur að mögulegum viðbrögðum stjórnvalda til lengri og skemmri tíma. Sérstaklega verður horft til vinnu við atvinnustefnu stjórnvalda sem nú er í mótun og á vef Stjórnarráðsins kemur fram að málið hafi verið rætt á fundi ríkisstjórnar í dag.
SSNE þakkar fyrir áheyrnina og gagnlegt samtal við starfshópinn og óskar honum góðs gengis í vinnu sinni.