Fara í efni

Framlengja verkefnið Betri Bakkafjörður og nýr verkefnisstjóri ráðinn

Framlengja verkefnið Betri Bakkafjörður og nýr verkefnisstjóri ráðinn

Eins og fram hefur komið áður hefur verið ákveðið að halda verkefninu Betri Bakkafjörður áfram út næsta ár. Byggðastofnun leggur verkefninu til fjármuni úr Brothættum byggðum líkt og verið hefur undanfarin ár og eru þau framlög nýtt til verkefnastjórnunar og til að styrkja framfaraverkefni íbúa.

Gunnar Már Gunnarsson, sem sinnt hefur verkefninu síðastliðin tvö og hálft ár, mun láta af störfum um áramót og var staðan því auglýst fyrr í vetur. Nú hefur verið gengið frá ráðningu nýs verkefnisstjóra og bjóðum við hana Romi Schmitz velkomna til starfa, um leið og við þökkum Gunnari fyrir vel unnin störf.

Romi er fædd og uppalin í Þýskalandi en er búsett á Þórshöfn, Langanesbyggð. Hún er með BA gráðu í norrænum fræðum og sagnfræði frá háskólanum í Bonn og starfaði þar á skrifstofu skólans áður en hún flutti til Íslands. Síðan hún lauk námi hefur hún m.a. sinnt íslenskukennslu fyrir þýska hópa og einstaklinga og skipulagt námsferðir til Íslands. Romi þekkir vel til í Langanesbyggð og hefur til að mynda gengið í bústörf bæði í Þistilfirði og á Langanesströnd. Fyrr á þessu ári tók Romi þátt í fyrirtækjasmiðju á vegum Atvinnumála kvenna og hlaut þar fyrstu verðlaun fyrir verkefni sitt, sem gekk út á staðbundna framleiðslu og sjálfbærni á norðausturhorni landsins.

Aðspurð segist hún brenna mjög fyrir sitt heimasvæði og koma inn í verkefnið með mikinn áhuga og metnað – og hugmyndir í þágu Bakkafjarðar. Íbúar hafi staðið sig vel í að koma framfaramálum í framkvæmd og margt jákvætt áunnist.

Starfsstöð Romi verður á Bakkafirði og í Kistunni, Þórshöfn, og mun hún taka til starfa í byrjun árs.

Getum við bætt síðuna?