Fræ – styrkur fyrir ný fyrirtæki og frumkvöðla
Skrifað
06.02.2026
Flokkur:
Fréttir
Umhverfismál
Uppbyggingarsjóður
Atvinnuþróun og ráðgjöf
Sóknaráætlun
Fræ – styrkur fyrir ný fyrirtæki og frumkvöðla
Tækniþróunarsjóður býður upp á styrkinn Fræ, sem er undirbúningsstyrkur fyrir einstaklinga og fyrirtæki yngri en fimm ára sem eru með verkefni á hugmynda- eða frumstigi þróunar. Styrkurinn styður þróun á virðisaukandi vöru eða þjónustu og getur verið fyrsta skrefið á leiðinni í stærri styrkflokka, líkt og Sprota.
Opið er allt árið fyrir umsóknir og hámarksstyrkur er 2.000.000 kr.
Starfsfólk SSNE veitir ókeypis ráðgjöf til fyrirtækja og frumkvöðla sem vilja sækja um í Fræ. Við aðstoðum með mótun verkefnis, umsóknargerð og næstu skref í þróunarferlinu.
Við hvetjum öll sem eru með góða hugmynd til að hafa samband og sækja um!
Upplýsingar um frá má finna hér.