Fara í efni

Fleiri hleðslustöðvar á Norðurland eystra

Mynd af hleðslustöðvum tekin af kortasjá Orkustofnunar
Mynd af hleðslustöðvum tekin af kortasjá Orkustofnunar

Fleiri hleðslustöðvar á Norðurland eystra

Á mánudaginn lauk framlengdum frest Orkusjóðs til umsókna fyrir styrki til kaupa á, og uppsetningu hleðslustöðva en mikill skortur er á slíkum stöðvum fyrir almenning á svæðinu, einkum austan Vaðlaheiðar.   Styrkurinn getur að hámarki verið fyrir 33% kostnaðar sem er lækkun frá fyrra ári þegar hann var 50%. 

Nokkrar umsóknir voru sendar inn af okkar svæði og standa vonir til að net hleðslustöðvanna verði þéttara á okkar svæði fyrr en síðar.  Búið er að panta stöðvar til að setja upp á bæði Kópaskeri og Raufarhöfn og eins bíða stöðvar á Bakkafirði og Þórshöfn uppsetningar en tilfinnanlegur skortur er á rafvirkjum á svæðinu frá Húsavík til Vopnafjarðar.  Atvinnutækifærin leynast víða!  Ljóst er að eftirspurn eftir aðgengi að hleðslustöðvum mun margfaldast á næstu árum eftir því sem orkuskipti verða í bílaflota landans, sem og bílaleiganna.  

Getum við bætt síðuna?