Fara í efni

Fjölmiðlar og landsbyggðir – málstofa í streymi

Fjölmiðlar og landsbyggðir – málstofa í streymi

Landshlutasamtök sveitarfélaga standa fyrir málstofu um fjölmiðla og landsbyggðir miðvikudaginn 12. maí kl. 9-10:30.

Fjallað verður meðal annars um vægi og birtingarmyndir íbúa á landsbyggðunum í frétta- og dagskrárefni, mikilvægi staðbundinna fjölmiðla, hlutverk og skyldur almannaþjónustumiðla gagnvart dreifðum byggðum og farið yfir dæmi frá Norðurlöndum.

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Byggðastofnun, RÚV, Háskólann á Akureyri og mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Dagskrá:

  • Setning - Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra
  • Horft út um glugga borgarmúrsins - Hilda Jana Gísladóttir bæjarfulltrúi og formaður stjórnar SSNE
  • Vandi staðbundinnar fjölmiðlunar - Birgir Guðmundsson dósent við fjölmiðlafræðideild Háskólans á Akureyri
  • Hvítu blettirnir í fjölmiðlun: Lærdómur frá Norðurlöndunum um stöðu staðbundinna miðla og hlutverk ríkisfjölmiðla - Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar
  • RÚV okkar allra - Stefán Eiríksson útvarpsstjóri.
  • Pallborðsumræður - Gunnar Gunnarsson framkvæmda- og ritstjóri Austurfréttar stýrir umræðum.

Málstofan verður haldin í menningarhúsinu Hofi en vegna sóttvarnareglna er ekki hægt að hafa viðburðinn opinn almenningi.

Fólk er hvatt til að fylgjast með á vefnum. Málstofunni verður streymt á Youtube og upptaka gerð aðgengileg að honum loknum.

Hér er hlekkur á fundinn

Getum við bætt síðuna?