Fara í efni

Fjöldi umsókna í Vaxtarrými

Fjöldi umsókna í Vaxtarrými

Fjölmargar umsóknir bárust í viðskiptahraðalinn Vaxtarrými en umsóknarfresti lauk á miðnætti, mánudaginn 20. september. Um er að ræða átta vikna viðskiptahraðall fyrir frumkvöðla, ný fyrirtæki og nýsköpunarverkefna innan starfandi fyrirtækja á Norðurlandi. Áhersla hraðalsins er sjálfbærni, matur, vatn og orka.

Næstu skref Norðanáttar, regnhlífasamtök Nýsköpunar á Norðurlandi, er að fara yfir umsóknir og meta hvaða verkefni falla best að áherslum hraðalsins. Þátttökuteymin verða tilkynnt mánudaginn 27. september. Hraðalinn hefst 4. október og stendur yfir til 26. nóvember.

Umsóknir bárust víðsvegar af Norðurlandi og má sjá dreifinguna hér að neðan.

Eins og sjá má, komu flestar umsóknir út Þingeyjarsveit og Skútustaðarhreppi eða um 33% umsókna. Eyjafjarðarsveit, Norðurþing, Húnavatnshreppur og Sveitarfélagið Skagafjörður voru með rúm 13% umsókna og Dalvíkurbyggð og Skagaströnd tæp 7%. 

Að Norðanátt koma SSNE, SSNVEimurNýsköpun í Norðri og RATA.
Nánari upplýsingar er að finna www.nordanatt.is

 

 

 

Getum við bætt síðuna?