Fara í efni

Fimmtíu milljónir til 26 vinnustaðaklasa um land allt

Fimmtíu milljónir til 26 vinnustaðaklasa um land allt

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur úthlutað tæpum 50 milljónum kr. í styrki til 26 verkefna til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Styrkirnir eru veittir á grundvelli byggðaáætlunar (aðgerð B.7 – Óstaðbundin störf). Markmiðið er að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni. Þetta er í fyrsta sinn sem styrkir eru veittir sérstaklega til að efla vinnustaðaklasa á landsbyggðinni.

Vinnustaðaklasi er skilgreint sem skipulagt og samnýtt vinnurými þar sem fjölbreytt vinnuaðstaða stendur til boða fyrir fleiri en einn vinnustað eða starfsstöðvar vinnustaða.

Styrkhæfir voru aðilar sem reka vinnustaðaklasa utan höfuðborgarsvæðisins. Í forgangi voru minni staðir þar sem atvinnulíf er einhæft, svæði sem hafa orðið fyrir verulegum áföllum í atvinnulíf eða svæði á fámennum vinnusóknarsvæðum.

13 styrkir komu til verkefna á Norðurlandi eystra til að byggja upp vinnustaðaklasa og styðja við sjálfbærni þeirra.

Ný uppbygging á forgangssvæði.

  • Fjarbúðin Hrísey. (Þróunarfélag Hríseyjar). Styrkur: 2.640.000.

Rekstrarstuðningur á forgangssvæði.

  • Kistan Þórshöfn. (Langanesbyggð). Styrkur: 1.000.000.
  • Höfn Bakkafirði. (Langanesbyggð). Styrkur: 1.000.000.
  • Ráðhúsið á Raufarhöfn. (Norðurþing). Styrkur: 1.000.000.

Ný uppbygging á miðlungs svæði.

  • Gígur í Mývatnssveit. (Náttúruverndarstofnun). Styrkur: 840.000.
  • F52 á Siglufirði. (F52 ehf.) Styrkur: 4.000.000.
  • Heilsukjarninn Laugum í Þingeyjarsveit. (Þingeyjarsveit). Styrkur: 4.000.000.

Rekstrarstuðningur á miðlungs svæði.

  • Hraðið á Húsavík. (Þekkingarnet Þingeyinga). Styrkur: 1.000.000.
  • Gígur í Mývatnssveit. (Náttúruverndarstofnun). Styrkur: 1.000.000.
  • F52 á Siglufirði. (F52 ehf.) Styrkur: 1.000.000.
  • Heilsukjarninn á Laugum. (Þingeyjarsveit). Styrkur: 1.000.000.

Rekstrarstuðningur á vinnusóknarsvæðum sem telja fleiri en 10.000 manns.

  • Atwork Akureyri. (IWG AK ehf.) Styrkur: 3.360.000.
  • Drift EA á Akureyri. (Drift EA ses.) Styrkur: 1.000.000.

SSNE óskar styrkhöfum innilega til hamingju, gaman verður að sjá áframhaldandi þróun í uppbyggingu vinnustaðaklasa á Norðurlandi eystra. Nú þegar er öflugt net vinnustaðaklasa á svæðinu eins og sjá má á heimasíðu SSNE Vinnurými í boði | SSNE.is

Getum við bætt síðuna?