Ferðaþjónustudagar 2026: Norðausturkjördæmi
Ferðaþjónustudagar 2026: Norðausturkjördæmi
Þriðjudaginn 10. nóvember standa Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Norðurlands og Austurbrú að fundi um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðausturkjördæmi. Fundurinn fer fram í Hofi á Akueyri kl. 17:00-19:00 undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar?
Fundurinn fer fram á mikilvægum tímapunkti en á Alþingi liggja nú fyrir stór mál sem snerta ferðaþjónustuna með beinum hætti og geta haft veruleg áhrif á rekstrarskilyrði greinarinnar og atvinnulíf um allt land. Þar má meðal annars nefna skattahækkanir á baðlón, krónutöluhækkanir á gistináttaskatti og innviðagjaldi ásamt frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald, svokallaðan náttúrupassa. Þetta eru ekki aðeins málefni ferðaþjónustunnar. Þau snúa að atvinnu, fjárfestingu, samkeppnishæfni og byggðaþróun um land allt.
Fyrri hluti fundarins verður helgaður erindum frá Samtökum ferðaþjónustunnar og markaðstofunum sem hverfast um ferðaþjónustu í viðkomandi kjördæmi. Þá mun Deloitte kynna niðurstöður á greiningu sem fyrirtækið hefur unnið fyrir SAF um áætlaðar skatta- og gjaldahækkanir á ferðaþjónustu sem liggja fyrir í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.
Seinni hluti fundarins verður vettvangur beinna samtala við þingmenn kjördæmanna um þau mál sem nú eru efst á baugi hjá ferðaþjónustunni.
Fundurinn verður bæði staðfundur og í beinni útsendingu á vef SAF – saf.is. Þau sem hafa hug á að mæta á staðinn eru beðin um að skrá sig, ekki þarf að gera slíkt ef áhugasamir ætla að horfa á streymi en við hvetjum fólk til að setja fundinn í dagbókina engu síður.
Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa á stöðu ferðaþjónustunnar og við vonumst til að sjá ykkur sem flest í Hofi á Akureyri þann 10. nóvember!
Fleiri upplýsingar og skráning fer fram hér.