Fara í efni

Ertu með hugmynd?

,,Verið velkomin með okkur í hugarflug, við pökkum fyrir ykkur innblæstri, reynslu og þekkingu í bak…
,,Verið velkomin með okkur í hugarflug, við pökkum fyrir ykkur innblæstri, reynslu og þekkingu í bakpokann!" - Stefán Pétur Sólveigarson forsprakki Krubbs, verkefnastjóri Hraðsins miðstöðvar nýsköpunar, uppfinningamaður og hönnuður.

Ertu með hugmynd?

Þér er boðið að taka þátt í Krubbi, tveggja daga hugmyndasmiðju sem er opin öllum og engrar fyrri kunnáttu þarfnast. Eða með orðum Stefáns í Hraðinu, forsprakka Krubbs:

Verið velkomin með okkur í hugarflug, við pökkum fyrir ykkur innblæstri, reynslu og þekkingu í bakpokann


Á Krubbi er nýsköpunarhugsun kennd og þjálfuð, ýtt undir hugmyndaauðgi og frumkvæði. Er þetta t.d. gert með því að tvinna gagnadrifinn innblástur í dagskrána og nota raunverulegar áskoranir sem þátttakendur fá að spreyta sig á. Ýmsir reyndir mentorar og þjálfarar aðstoða þátttakendur í leit sinni að vörum og svörum. Jafnframt fá þátttakendur aðstoð við að mynda og starfa í teymi og við að kynna sínar hugmyndir. Orðið hugmyndahraðhlaup er hugarsmíði Stefáns verkefnastjóra Hraðsins. Orðið fæddist í aðdraganda Krubbsins sem haldinn var í fyrsta sinn árið 2024. Merkingin er sú sama og hakkaþon. 

Nýsköpunarhugsun er sú færni sem er hvað verðmætust og eftirsóttust af atvinnurekendum samkvæmt World Economic Forum og áherslan hjá stjórnvöldum og heima í héraði á nýsköpun gegnum Sóknaráætlun mikil og skýr. SSNE tekur því virkan þátt í undirbúningi og framkvæmd Krubbs ásamt Háskólanum á Akureyri, með það að markmiði að efla nýsköpun á svæðinu, búsetugæði og frjóvga farveg fjölbreyttra atvinnugreina. 

Áskoranir ársins eru afar spennandi: 


Áskorun eitt: Hvernig gerum við bæi betri fyrir börn?
--> Hvernig getum við t.d. skapað öruggar götur, græn svæði og fjölbreytt rými til leiks og samveru? Eða eigum við að hugsa um eitthvað allt annað?

Langar þig að bæta þinn bæ, en vantar innblástur?
Það verður nóg af honum á Krubbi! Reynslumiklir mentorar og þjálfarar aðstoða þátttakendur í gegnum allt ferlið, en rúsínan í pylsuendanum er innblástur frá krökkum í 4. bekk sem taka þátt í Krakkakrubbi um morguninn. Þau munu blása okkur fullorðna fólkinu byr í brjóst og koma hugarfluginu af stað með innleggi á Krubbi hugmyndahraðhlaupi. Kannski verða einhver þeirra jafnvel mentorar?


Áskorun tvö: Opni glugginn
--> Áskorun þar sem öll mega lofa hugmyndafluginu að ráða og leggja fram hugmyndir – stórar sem smáar. Hér eru engar rangar hugmyndir, aðeins tækifæri til að sjá hlutina í nýju ljósi og prófa nýjar leiðir. Ertu kannski að æfa þig fyrir Norðansprotann?

Er vindurinn mættur í seglin og þú vilt sigla af stað?

Ertu enn að hugsa um takmarkanir?

🟢 Ef þú ert á aldrinum 16-99 ætti ekkert að stoppa þig
🟢 Það kostar ekkert að taka þátt
🟢 Hugmyndahraðhlaupið er fyrir öll áhugasöm um nýsköpunarfærni.
🟢 Býrðu ekki á Húsavík? Bara betra, komdu og njóttu þess að vera þar yfir eina nótt.
🟢 Mikilvægt: Það er hvorki nauðsynlegt né skylda að búa yfir ákveðinni þekkingu.
🟠 Ertu enn að hugsa um að þetta sé kannski ekki fyrir þig? Hringdu þá í Stefán Pétur verkefnastjóra Hraðsins 861-0057 og fáðu frekari upplýsingar

Af hverju heitir þetta eiginlega Krubbur?
Hugmyndahraðhlaupið dregur nafn sitt af Krubbi og svokölluðu Krubbsveðri sem skapast í ákveðinni vindátt á Húsavík. Veðrinu fylgir svo mikill stormur að fólk heldur sig innan dyra meðan hann geysar. Vonast er eftir alvöru Krubbsstormi í hugum þátttakenda meðan á hlaupinu stendur!

Getum við bætt síðuna?