Fara í efni

Ert þú með góða hugmynd?

Ert þú með góða hugmynd?

Styrkir til atvinnumála kvenna

Vinnumálastofnun/velferðarráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna árið 2021 lausa til umsóknar.
Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.

  • Verkefnið sé í meirihluta eigu konu/kvenna (51%) og stjórnað af konu.
  • Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.
  • Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar.
  • Viðskiptahugmynd sé vel útfærð.
  • Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000), ásamt styrkjum til markaðssetningar og vöruþróunar að hámarki 4.000.000

Styrkir eru veittir fyrir helmingi af heildarkostnaði verkefna.

Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 40.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 4.000.000.

Að þessu sinni hvetjum við frumkvöðlakonur á landsbyggðinni til að sækja um ásamt þeim sem eru atvinnulausar.

Umsóknarfrestur er frá 25.1. til og með 1.mars og skal sækja um rafrænt á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.is

Á heimasíðu verkefnisins má finna nánari upplýsingar um reglur og skilyrði sem þarf að uppfylla auk þess sem starfsmaður gefur nánari upplýsingar.

asdis.gudmundsdottir@vmst.is

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum

https://www.facebook.com/atvinnumalkvenna

https://twitter.com/atvinnumalkvenn

Getum við bætt síðuna?