Endurskoðun byggðaáætlunar
Endurskoðun byggðaáætlunar
SSNE hefur boðað til fundar ásamt Innviðaráðuneytinu og Byggðastofnun þar sem kynnt verða fyrstu drög að endurskoðaðri byggðaáætlun, með sérstaka áherslu á drög að aðgerðaáætlun hennar. Fulltrúar ráðuneytisins og Byggðastofnunar munu kynna fyrirliggjandi drög og hvetja til skoðanaskipta um þau. Umræður og ábendingar sem fram koma á fundinum verða nýttar við áframhaldandi vinnu og munu m.a. liggja til grundvallar efni í hvítbók sem sett verður í samráðsgátt stjórnvalda í lok maí.
Fyrir fundinn verður opnað fyrir rafrænt samráð um drögin á vef Byggðastofnunar og eru fundargestir hvattir til að kynna sér efnið vel fyrir fundinn. Stefnt er að því að birta drögin fyrir páska og verða þau þá sett hér í fundarboðið þannig að fundargestum gefist góður tími til að kynna sér þau.
Fundurinn verður haldinn á Teams 10. apríl kl. 11.00 og er öllum opinn. Nauðsynlegt er þó að skrá sig til að fá sendan hlekk. Skráning hér.