Fara í efni

Einungis 3% af Framkvæmdasjóði ferðamannastaða á Norðurland eystra

Einungis 3% af Framkvæmdasjóði ferðamannastaða á Norðurland eystra

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála, menningar- og viðskiptaráðherra úthlutaði nýverið úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða árið 2022.  54 verkefni hlutu styrki og voru þar einungis tvö verkefni af Norðurlandi eystra en það voru Ferðafélag Akureyrar og Miðgarðakirkja í Grímsey sem hlutu styrki upp á 14,7 m.kr. eða 2,5% af úthlutuðu fjármagni.  Verkefnin sem hlutu styrk snúast um byggingu snyrtiaðstöðu við kirkjubyggingu í Grímsey og að færa og stækka rotþró við salerni í Drekagili. 

Að þessu sinni er úthlutunin rúmlega 584 milljónir króna en hæsti einstaki styrkurinn er 55 milljónir kr. Framkvæmdasjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. Mikill árangur hefur náðst í starfi sjóðsins í að bæta innviði um land allt og auka getu svæðanna til að taka á móti ferðamönnum en áhuga vekur skipting fjármagns eftir landshlutum.  Enn virðist stór hluti fjármagns rata á Suðurlandið þrátt fyrir háværar raddir um betri dreifingu ferðamanna um landið.  Ætla má með auknu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll að fjöldi ferðamanna aukist á svæðinu og þá er vissara að innviðir ferðaþjónustunar geti tekið við þeim. 

SSNE býður upp á fría ráðgjöf vegna styrkumsóknarskrifa og hvetur hagsmunaaðila ferðaþjónustunnar og aðra viðkomandi til að sækja í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða til að fjármagna áframhaldandi uppbyggingu.  

Getum við bætt síðuna?