Fara í efni

Dr. Ottó ráðinn framkvæmdastjóri hjá EIMI

Dr. Ottó ráðinn framkvæmdastjóri hjá EIMI

Ottó er eðlisfræðingur og útskrifaðist með BSc gráðu frá Háskóla Íslands 2012, og með doktorsgráðu í atómeðlisfræði frá Árósarháskóla í Danmörku 2020. Hann hóf störf hjá Eimi sumarið 2020, og tók við sem rannsókna- og þróunarstjóri í september það ár. Hjá Eimi hefur Ottó leitt sókn í innlenda og erlenda styrktarsjóði og tekið þátt í innlendum og erlendum rannsókna- og þróunarverkefnum.

„Það eru mikil færi á því að gera betur hér á landi þegar kemur að umhverfis-, loftslags-, og auðlindamálum. Eimur er kjörinn vettvangur til að hafa mikil áhrif á þessa málaflokka og ég er viss um að við getum hraðað orkuskiptum og innleiðingu hringrásarhagkerfis, sérstaklega með þátttöku í alþjóðlegum samstarfsverkefnum. Ég er sæll með að vera treyst fyrir þessu starfi“ , segir Ottó Elíasson.

„Ottó hefur sýnt af sér mikla fagmennsku og hæfni í þeim störfum sem hann hefur sinnt innan Eims síðastliðin ár og því er mikil ánægja að fá hann til að leiða Eim áfram í komandi verkefnum. Sérstök áhersla verður lögð á sókn í Evrópusjóði á næstu þremur árum og stjórn Eims telur Ottó hafa gríðarlega góða innsýn og lausnamiðaða nálgun sem mun koma verkefninu vel á næstu árum og tryggja áframhaldandi vöxt og rekstrargrundvöll Eims“, segir Kjartan Ingvarsson, stjórnarformaður hjá Eimi.

Frétt af www.eimur.is

Getum við bætt síðuna?